Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 9. ágúst 2026 12:36 Njáll Trausti Friðbertsson hefur setið lengi í fjárlaganefnd. Vísir/Vilhelm Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væntir þess að ekki takist að skila afgangi af rekstri ríkissjóðs fyrr en árið 2031 þrátt fyrir áform ríkisstjórnarinnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir inntak skýrslunnar ekki koma á óvart og kallar eftir dýpri umræðu um fjárlögin.
Samkvæmt núgildandi fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Þrátt fyrir verðbólgutölur hafa Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra bæði sagt að markmiðið muni nást. Í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland, sem Innherji fjallaði um fyrir helgi, er sjóðurinn heldur svartsýnni á horfurnar í ríkisfjármálum en birtist í nýjustu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Telur sjóðurinn að það muni ekki takast að skila afgangi af rekstri ríkissjóðs fyrr en á árinu 2031. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd segir skýrslu AGS ekki koma á óvart. „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár. Það er að teiknast upp mikil óvissa í efnahagslífi þjóðarinnar. Þetta byrjaði með hækkun veiðigjalda, minni fjárfestingu í sjávarútveginum. Við erum að sjá ýmsar skattahækkanir boðaðar á ferðaþjónustuna, baðlónin eru næst og ýmislegt fleira. Það minnkar samkeppnishæfni hennar og dregur úr fjárfestingum. Við erum að sjá að allt er að ganga eftir sem varað var við. Botnlaus ríkisútgjöld sem koma í veg fyrir lækkun vaxta og svo er byggingamarkaðurinn á leið í frost.“ Taka þurfi á ríkisfjármálunum með ábyrgari hætti. Hann hefði viljað sjá dýpri umræðu um fjárlögin áður en þjóðin greiðir atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Ég lít svo á að það er ekki tilviljun að umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna komi fram áður en fjárlögin verða kynnt fyrir næsta ár og við förum að sjá betur inn í hvernig ríkisstjórnin ætlar að haga málum seinni hluta kjörtímabilsins. Það vekur áhuga að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn talar um að jafnvægi náist 2031. Það er bara síðari hluti næsta kjörtímabils. Þannig það er ekki núverandi ríkisstjórn, miðað við það sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir, sem nær þessu jafnvægi sem við öll svo sannarlega þráum að ná.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármál heimilisins Efnahagsmál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira