Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Daníel

Jón Þór Stefánsson skrifar
FotoJet - 2026-08-09T194158.115

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Daníel Má Kárasyni, 41 árs, en síðast er vitað um ferðir hans í Reykjavík í gær, laugardag.

Daníel er sagður klæddur í mosagrænan jakka, bláa skyrtu, gallabuxur og Timberland skó. Hann hafi verið á ferðinni á ljósgráum Volvo XC, sem er með skráningarnúmerið OF677.

„Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Daníels, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112,“ segir í tilkynningu lögreglu.

LRH



Fleiri fréttir

Sjá meira


×