„Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 9. ágúst 2026 22:44 Tryggvi Hrafn kom að tveimur mörkum í kvöld. Vísir/Guðmundur „Þetta er virkilega ljúft, geggjað að ná að vinna leik í deildinni. Mjög langt síðan síðast. Við þurftum að finna þessa sigurtilfinningu aftur, hún er virkilega ljúf,“ sagði Tryggvi Hrafn Haraldsson eftir 1-3 sigur Vals gegn Breiðabliki í 18. umferð Bestu deildarinnar. Tryggvi skoraði og lagði upp síðustu tvö mörk leiksins.
Valur hafði náð forystunni í fyrri hálfleik með frábæru marki Dags Inga Garðarssonar en Breiðablik náði að jafna leikinn í seinni hálfleik eftir þrumuskot Davíðs Ingvarssonar. Blikarnir virtust síðan líklegri til að skora þriðja markið en Valsmenn náðu að snúa leiknum við. Tryggvi skoraði annað mark Vals á 79. mínútu með skalla sem fór í stöngina og inn eftir frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina frá Herði Inga Gunnarssyni. Tryggvi lagði síðan upp þriðja mark Vals eftir skyndisókn, fyrir Jónatan Inga Jónsson. „Við komum út í seinni og virtumst bara vera að bíða eftir því að fá á okkur mark. Svo gerist það loksins og þá var eins og við værum að bíða eftir því að fá á okkur annað. En við náðum að þétta raðirnar og hvíla okkur með boltann aðeins. Skoruðum svo gott mark og fáum þá framar. Fáum svo þriðja markið eftir skyndisókn í lokin. Þetta snerist bara um að halda áfram og reyna. Við vorum kannski hræddir eftir að hafa komist yfir í síðasta leik og tapað því niður undir lokin. Við þurftum allavega að hafa fyrir þessu í dag en ég er virkilega sáttur með sigur,“ sagði Tryggvi í viðtali eftir leik. Aðeins fjórar umferðir eru eftir af venjulegri deildarkeppni fyrir tvískiptingu. Valsmenn ætla sér að enda í efri hlutanum og Tryggvi segir sigurinn nærandi fyrir framhaldið. „Að sjálfsögðu. Það er ekki mikið af leikjum eftir. Við ætlum að vera í efri hlutanum. Erum búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku og úrslitum sömuleiðis.“ Stóra spurningin er þá hvort Tryggvi muni klára tímabilið í Valstreyjunni. Hann er á leiðinni aftur heim til ÍA en það liggur ekki fyrir hvort félagaskiptin verði frágengin á næstu dögum eða eftir tímabilið. „Ég veit ekki betur [en að ég klári tímabilið í Valstreyjunni]. Ég hef, í fullri hreinskilni, hvorki talað við Val eða ÍA undanfarið. Ég held að það sé alveg klárt að ég klári tímabilið hér.“
Valur Besta deild karla Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira