50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Rakel Sveinsdóttir skrifar 12. ágúst 2026 07:00 Það skyldi þó ekki vera að reynsla kvenna muni verða þeim sérstaklega til framdráttar á gjörbreyttum vinnumarkaði framtíðarinnar? Meðal annars aðlögunarhæfni og fleira, sem fylgir konum sérstaklega, s.s. vegna barneigna, að sjá um þriðju vaktina og fleira. Vísir/Getty Það er svo oft verið að tala niður ný atvinnutækifæri fólks yfir fimmtugt og lengi hefur nú verið rætt um að halli á konur frekar en menn í einkageiranum í atvinnulífinu.
Þegar fyrirsögn talar hins vegar um að 50+ konur eigi sérstaklega spennandi og góð tækifæri framundan á vinnumarkaði er því vert að rýna í málin. Í grein sem birtist á FastCompany nýlega var fyrirsögnin einfaldlega: Why women over 50 are the future of work in the age of AI Eða: Hvers vegna konur yfir fimmtugt eru framtíðin á vinnumarkaði gervigreindar Og hvers vegna í ósköpunum ætti það nú að vera? Jú, svo skemmtilega vill til að greinarhöfundur telur að margt af því sem konur fara sérstaklega í gegnum í lífinu sé nú að fara að nýtast þeim sérstaklega. Til dæmis það að hafa vegna barneigna þurft að taka sér hlé frá störfum, unnið hlutastörf eða skipt um vinnu á þeim tíma sem barneignir og uppeldi kölluðu hvað mest á það. Og eins má lesa í gegnum línurnar hvernig það að konur sjái um þriðju vaktina, tengi kynslóðir saman, sjái um heildina, passi upp á teymið og svo framvegis… sé líklegt til að hjálpa líka. Sett í samhengi við stórtækar breytingar á vinnumarkaði næstu ár og áratugi, er allt sem snýr að reynslu og getu til að takast á við breytingar, auka á sveigjanleika, aðlagast upp á nýtt, vinna með breytingar, láta teymisvinnuna ganga og svo framvegis. Allt eru þetta atriði sem konur búa einfaldlega yfir, meðal annars vegna þess að þær fara í gegnum svo miklar breytingar á starfsferlinum sem karlmenn þurfa síður að taka á sig eða hafa gert í minna mæli. Hvort konur muni uppskera af þessu á vinnumarkaði framtíðarinnar skal ósagt látið hér, en alls eru þetta níu atriði sem greinarhöfundur telur konur búa yfir í reynslu og getu, sem muni einfaldlega gera þær að sérstaklega góðum kosti fyrir atvinnulíf framtíðarinnar. Grein FastCompany má lesa hér.
Jafnréttismál Vinnumarkaður 50+ Tengdar fréttir Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og fjárfestir, tók við formennsku Jafnvægisvogar FKA í febrúar á þessu ári. Hún segist sérstaklega horfa til þess að fá fleiri skráð félög, lífeyrissjóði, ríkisfyrirtæki og sveitarfélög til að skrá sig í Jafnvægisvogina, enda sé þetta hópur vinnustaða sem samfélagið horfi til sem fyrirmynda og þurfi að sýna gott fordæmi. 10. júní 2026 07:02 Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar „Ég myndi segja að verkaskiptingin okkar heima sé góð og maðurinn minn meira að segja oft að taka meira þegar að ég er að vinna svona mikið. En þriðja vaktin felur svo margt í sér,“ segir Arna Harðadóttir framkvæmdastjóri Helix. 20. nóvember 2023 07:01 „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ „Við vorum svo dugleg að ræða þetta allt fyrir fram,“ segir Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto álversins í Straumsvík og gefur okkur um leið innblástur fyrir það hvernig ungt fólk getur mætt þriðju vaktinni svokallaðri; með markvissum samskiptum um hver á að gera hvað, hverjum finnst skemmtilegast að gera hvað og hver er bestur í hverju. 10. febrúar 2026 07:02 Boða alvöru breytingar í jafnréttismálum efnahags- og atvinnulífs „Ísland hefur mikið fram að færa á sviði jafnréttismála og á okkur er hlustað á alþjóðavettvangi í þeim efnum,” segir Katrín Jakobsdóttir, stjórnarformaður nýs Rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi og fyrrum forsætisráðherra. 15. apríl 2025 07:03 Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Sjá meira
Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og fjárfestir, tók við formennsku Jafnvægisvogar FKA í febrúar á þessu ári. Hún segist sérstaklega horfa til þess að fá fleiri skráð félög, lífeyrissjóði, ríkisfyrirtæki og sveitarfélög til að skrá sig í Jafnvægisvogina, enda sé þetta hópur vinnustaða sem samfélagið horfi til sem fyrirmynda og þurfi að sýna gott fordæmi. 10. júní 2026 07:02
Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar „Ég myndi segja að verkaskiptingin okkar heima sé góð og maðurinn minn meira að segja oft að taka meira þegar að ég er að vinna svona mikið. En þriðja vaktin felur svo margt í sér,“ segir Arna Harðadóttir framkvæmdastjóri Helix. 20. nóvember 2023 07:01
„Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ „Við vorum svo dugleg að ræða þetta allt fyrir fram,“ segir Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto álversins í Straumsvík og gefur okkur um leið innblástur fyrir það hvernig ungt fólk getur mætt þriðju vaktinni svokallaðri; með markvissum samskiptum um hver á að gera hvað, hverjum finnst skemmtilegast að gera hvað og hver er bestur í hverju. 10. febrúar 2026 07:02
Boða alvöru breytingar í jafnréttismálum efnahags- og atvinnulífs „Ísland hefur mikið fram að færa á sviði jafnréttismála og á okkur er hlustað á alþjóðavettvangi í þeim efnum,” segir Katrín Jakobsdóttir, stjórnarformaður nýs Rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi og fyrrum forsætisráðherra. 15. apríl 2025 07:03