„Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2026 18:15 Guðrún Brá Björgvinsdóttir með Íslandsbikarinn sem hún var að vinna í fimmta sinn á ferlinum. GSÍmyndir Guðrún Brá Björgvinsdóttir segir að mikið hafi breyst í hugarfarinu til golfíþróttarinnar frá því að þegar hún byrjaði að æfa og spila golf.
Guðrún Brá varð Íslandsmeistari í golfi á Korpúlfsstaðavelli um síðustu helgi og var að vinna þennan titil í fimmta sinn á ferlinum og um leið annað árið í röð. Guðrún Brá var flogin út til Sviss til að keppa á móti strax daginn eftir og það var því lítill tími fyrir nýja Íslandsmeistarann að fagna titlinum. Guðrún Brá byrjaði snemma í golfi en vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 2019 þegar hún var 25 ára. Síðdegisútvarpið á Rás 2 heyrði í Guðrúnu Brá í dag og fékk hana meðal annars til að segja frá því hvernig hún byrjaði í golfi og til að útskýra af hverju það væri svo gaman í golfi. „Ég byrjaði að æfa golf þegar ég var 10 ára og þá fannst mér það bara ekki vera eitthvað sérstakt. Ég var rosalega mikið í fótbolta þegar ég var yngri og ég var þessi svona týpíska stelpa og nennti eiginlega bara á golfæfingu ef frænka mín eða vinkona mín var að fara á golfæfingu líka. Þannig að ég var alls ekki eitthvað hugfangin fyrst,“ sagði Guðrún Brá. „Svo byrjaði ég að keppa þegar ég var 13 ára og ég man bara að ég spilaði rosalega vel í fyrsta mótinu mínu og þá hugsaði ég: Þetta er skemmtilegt. Þannig að það var svona tímapunkturinn sem ég svolítið svona dróst inn í þetta, 13 ára,“ sagði Guðrún. En skilur hún þessa svakalegu vakningu í golfinu og þennan rosalega mikla áhuga á íþróttinni á Íslandi í dag? „Mér finnst það mjög skiljanlegt en þetta er náttúrulega ótrúlega fyndið. Ég er náttúrulega búin að vera í þessu mjög lengi og þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi. Það væri bara asnalegt og fyrir gamla karla en núna vilja náttúrulega allir bara fá golfkennslu hjá mér,“ sagði Guðrún létt. „Þannig að þetta er svona svolítil breyting frá því að maður var yngri en ég skil þetta og ég skil ekki af hverju fólk er ekki búið að fatta þetta fyrr. Þetta er náttúrulega bara ótrúlega falleg íþrótt og býður upp á ótrúlega marga möguleika, bæði félagslega og þetta er góð útivist og hreyfing. Þú getur farið til útlanda, þú getur ferðast um heiminn og gert þetta, þú getur farið með afa þínum, þú getur farið með vinkonunum og þetta er alls konar,“ sagði Guðrún meðal annars í viðtalinu.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira