Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Árni Sæberg og Agnar Már Másson skrifa 12. ágúst 2026 11:41 Ellefu voru handteknir á Íslandi og tveir erlendis vegna meints manndráps í heimahúsi á Kársnesi. Vísir Tveir hafa verið handteknir erlendis, hvor í sínu Evrópulandinu, í tengslum við rannsókn á manndrápi að Vallarbraut í Kópavogi um helgina. Þeir sæta gæsluvarðhaldi í viðkomandi löndum. Ellefu hafa verið handteknir hérlendis, tveir sæta gæsluvarðhaldi hér en einum hefur verið sleppt úr haldi. Lögregla telur að eggvopni hafi verið beitt en ekkert slíkt hefur fundist við rannsókn málsins. Hinn látni var pólskur ríkisborgari.
Þetta segir E. Agnes Eide Kristínardóttir í samtali við fréttastofu. Tilkynnt var um líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi síðdegis á sunnudag, en maðurinn sem fyrir henni varð var fluttur á Landspítalann og lést þar síðdegis hinn sama dag. „Í raun og veru kemur útkall um mann utandyra með áverka og lögreglan fer í það og í ljós kemur að þarna er maður með mikla áverka. Hann er fluttur á slysadeild og í kjölfarið fáum við málið til rannsóknar. Það er nú þegar búið að handtaka ellefu manns, sumir eru lausir, aðrir eru í gæsluvarðhaldi, sumir eru enn þá bara í fangageymslu. Tveir hafa verið handteknir erlendis. Við teljum að þarna hafi verið ráðist á þennan aðila innandyra í húsinu og til þess hafi verið notað eggvopn,“ segir E. Agnes. Elín Agnes Eide Kristínardóttir hjá Rannsóknardeild lögreglu.Vísir/Sigurjón Húsleit víða Elín Agnes segir enn fremur að lögregla hafi ráðist í húslet víða og einnig leitað í bifreiðum. Hún vill þó ekki gefa upp hvar var ráðist í leit eða á hve mörgum stöðum. Lögregla réðst meðal annars í handtökur í Gnoðavogi í Reykjavík í kjölfar árásarinnar en Agnes segir lögreglu hafa fengið upplýsingar þess efnis að hinir grunuðu væru þar niður komnir. Einn í hvoru Evrópulandinu Hún segir að lögregla sé ekki komin svo langt áleiðis í rannsókn málsins til þess að geta tjáð sig um það hvort málið sé talið tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Það sé meðal þess sem skoðað sé í viðamikilli rannsókn málsins, sem sé í raun á frumstigi. Lögregla hafi þegar notið aðstoðar Europol og lögregluyfirvalda í tveimur Evrópulöndum, þar sem einn hafi verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, í hvoru landi fyrir sig. Sá sem kærði gengur laus Lögreglan greindi frá því í tilkynningu á mánudag að íslenskur ríkisborgari annars vegar og erlendur ríkisborgari hins vegar hefðu í Héraðsdómi Reykjaness verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápinu. Þar sagði að annar mannanna hefði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. ágúst, en hinn til 17. ágúst. Í gær var þriðji maðurinn úrskurðaður í varðhald til 14. ágúst og verjandi hans sagði í samtali við fréttastofu að gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yrði kærður. Sá er nú laus úr haldi, að sögn Elínar Agnesar, en hinir eru enn í haldi. Í heildina hafi ellefu verið handteknir hérlendis og einhverjum þeirra hafi þegar verið sleppt en aðrir séu ýmist í gæsluvarðhaldi eða í fangageymslu. Heimilt er að halda grunuðum manni í fangageymslu í sólarhring án gæsluvarðhaldsúrskurðar. E. Agnes segir að lögregla hafi ekki tekið ákvörðun um það hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim sem nú eru í fangageymslu. Hún kveðst ekki geta tjáð sig um aldur, þjóðerni eða kyn þeirra.
Manndráp í Vallargerði á Kársnesi Lögreglumál Kópavogur Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira