Komstu ekki með afmælisgjöf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 13. ágúst 2026 07:01 Það er auðvelt að tengja fátækt barna við skort á mat, fatnaði eða húsnæði. En veruleikinn er oft annar. Fátækt birtist líka í litlum hversdagslegum aðstæðum þar sem sum börn geta ekki tekið þátt á sama hátt og önnur. Þessi skilningur hefur dýpkað í vinnunni við mótun fyrstu stefnu og aðgerðaáætlunar gegn fátækt barna á Íslandi. Í þeirri vinnu hef ég, ásamt sérfræðingum barna- og menntamálaráðuneytisins, átt samtöl við fulltrúa sveitarfélaga, félagasamtaka, fagfólk og fólk með eigin reynslu af því að búa við kröpp kjör. Eitt af því sem hefur komið upp í þeim samtölum eru afmælisveislur bekkjarsystkina sem er einn af mörgum kostnaðarliðum sem fylgja skólagöngu barna. Þessi liður skiptir máli því hann snýst ekki aðeins um fjármuni heldur líka um þátttöku, vináttu og það að tilheyra. Góð hugsun – ný áskorun Mikil áhersla er á það í íslensku skólasamfélagi að enginn sé skilinn út undan. Þess vegna er orðið algengt að öllum bekknum er boðið til veislu þegar barn á afmæli. Það er þróun sem vissulega ber að fagna. Eðli málsins samkvæmt geta afmælisboðin orðið mjög mörg yfir skólaárið í fjölmennum bekkjum. Fyrir fjölskyldur sem búa við þröngan fjárhag getur kostnaður við afmælisgjafir orðið yfirþyrmandi. Á sama tíma hafa svo kallaðir afmælisbræðingar orðið sífellt algengari. Þeir eru frábær lausn fyrir afmælisbörnin og foreldra þeirra, en fyrir gestina getur kostnaðurinn orðið hinn sami eða jafnvel meiri ef kaupa þarf margar gjafir á sama tíma. Sumir foreldrar senda börnin sín því einfaldlega ekki í afmæli. Ekki vegna þess að þau vilji það ekki heldur vegna þess að þau hafa ekki efni á því. Við höfum lagt okkur fram um að tryggja að öll börn fái boð í afmæli. En höfum við hugsað jafn mikið um það hvort öll börn geti þegið boðið? Skömmin sem enginn sér „Ertu ekki með pakka?“ er spurning sem ekkert barn ætti að þurfa að heyra. Barn sem mætir án gjafar í afmæli getur fundið fyrir skömm, jafnvel þótt enginn segi neitt né taki sérstaklega eftir því. Það breytir hins vegar ekki upplifun barnsins. Börn bera sig eðlilega saman við önnur börn og forðast neikvæða athygli sem fylgir því að skera sig úr hópnum. Þess vegna kjósa sumir foreldrar frekar að halda barninu heima en að setja það í slíkar aðstæður. Þetta er ein birtingarmynd fátæktar barna. Ekki í stórum fyrirsögnum heldur í litlum augnablikum sem skilja eftir þá tilfinningu að maður sé ekki samboðinn hópnum. Samtal sem skiptir máli Í farsældarsáttmálanum hvetja Heimili og skóli foreldra til að móta sameiginleg viðmið um það sem skiptir börn máli. Þar er að finna fjölmargar hugmyndir sem geta einnig nýst í umræðunni um afmæli og afmælisgjafir. Þetta er þó ekki einfalt mál. Afmælisbarnið vill eðlilega fá gjafir. Flest afmælisbörn myndu sjálfsagt frekar vilja fá litla eða ódýra gjöf fremur en enga. Sums staðar hefur verið samið um sameiginlegan gjafapott eða verðviðmið. Slíkar leiðir geta reynst vel, en kalla á samstöðu foreldra. Öll börn eru afmælisbörn einu sinni á ári og flest eru margsinnis afmælisgestir. Þess vegna skiptir máli að þau læri snemma að meta bæði hlutverkin. Kannski er mikilvægasta verkefnið þó ekki aðeins að finna hentugt fyrirkomulag heldur líka að ræða við börnin okkar um raunverulega þýðingu gjafa. Hlýhugur kostar ekkert Við getum kennt börnum að allar gjafir, stórar sem smáar, eru gefnar af góðum og fallegum hug. Lítil gjöf getur glatt jafn mikið og stór og dýr gjöf. Verðmæti gjafar felst ekki í verðmiðanum heldur í hug þess sem gefur. Svo má einnig hugsa dæmið þannig að pakki er ein gjöf en nærvera gerir afmælið að samfagnaði. Ekkert afmælisbarn vill fá fjölda gjafaán vina. Vinátta er líka gjöf. Þessi hugsun getur hjálpað okkur að skapa afmælismenningu þar sem enginn þarf að hafa áhyggjur af „afmælisgjöfinni“ heldur geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli – að skemmta sér í góðra vina hópi. Ef markmið okkar er að enginn sé skilinn út undan má afmælisgjöfin í það minnsta aldrei verða hindrun fyrir þátttöku. Við getum ekki stjórnað öllu í þessu sambandi, til dæmis því hvað foreldrar kjósa að verja miklu til afmælisgjafa, en sem samfélag getum við sett okkur sameiginleg viðmið. Lengi vel hefur viðmiðið verið 500 krónur, en nú virðist sem fjari undan þessu sameiginlega viðmiði. Við getum haft áhrif á þau gildi sem við miðlum til barnanna okkar. Getum kennt þeim að vinátta, samvera og umhyggja séu meira virði en peningalegt verðmæti gjafar. Kannski er það fallegasta gjöfin sem við getum gefið börnunum okkar þegar afmæli eru annars vegar. Höfundur er þingkona Flokks fólksins og leiðir stýrihóp mennta- og barnamálaráðherra sem vinnur að mótun fyrstu stefnu og aðgerðaáætlunar gegn fátækt barna á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Börn og uppeldi Mest lesið Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun