ICE-liðar fá rafmagnshanska Samúel Karl Ólason skrifar 12. ágúst 2026 22:04 Útsendarar ICE hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir harðræði en nú munu þeir fá sérstaka hanska sem geta gefið fólki raflost. AP/Ryan Murphy Starfsmenn heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna eiga á næstunni að byrja að bera hanska sem geta verið notaðir til að gefa fólki raflost. Ráðuneytið ætlar að verja tíu til tuttugu milljónum dala í hanska þessa fyrir útsendara Innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) sem hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir harðræði gegn fólki á undanförnum mánuðum.
Ætlanir þessar hafa vakið töluverða reiði meðal Demókrata vestanhafs, embættismanna og aðgerðasinna, sem segja að beiting þeirra sé bæði óþörf og grimmileg. Hanskar þessir kallast G.L.O.V.E. Þeir líta út eins og venjulegir vettlingar en hægt er að nota þá til að gefa öðru fólki straum. Til þess þarf að kveikja á hönskunum og snerta bera húð þess sem á að fá raflostið en þeir eru ætlaðir til notkunar gegn fólki sem er að streitast á móti löggæslumönnum. AP fréttaveitan segir þá notaða nokkuð víða um Bandaríkin en að mestu í fangelsum. Umfang kaupanna bendir til þess að flestir, ef ekki allir ICE-liðar eigi að fá hanska. Hér að neðan má sjá kynningarmyndband um hanskana en það er framleitt af fyrirtæki sem kallast Compliant Technologies LLC. Heimavarnaráðuneytið (DHS) heldur utan um aragrúa alríkisstofnana en auk ICE er það hvað helst Landamæraeftirlit Bandaríkjanna (CBP) sem hefur komið að aðgerðunum í Minnesota. Í daglegu tali hafa útsendarar allra þessara stofnana gjarnan verið kallaðir ICE-liðar. Sjá einnig: Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Í fyrsta fjárlagafrumvarpi Donalds Trump á þessu kjörtímabili fékk heimavarnaráðið gífurlega stóra fjárveitingu eða um 75 milljarða dala. Það samsvaraði á sínum tíma rúmum níu billjónum króna (tólf núll). Þar af fóru þrjátíu milljarðar dala til ICE. Með því vildu Trump-liðar auðvelda stofnunum ráðuneytisins að finna fólk sem dvelur í Bandaríkjunum ólöglega og vísa því úr landi. Hluti þessara peninga var notaður í að fjölga starfsmönnum ICE og annarra stofnana verulega. ICE-liðar hafa verið verulega umdeildir á undanförnum mánuðum en ríkisstjórn Donalds Trump hefur sent þá víða um land til að hafa hendur í hári fólki sem talið er dvelja ólöglega í Bandaríkjunum. Komið hefur til umfangsmikilla mótmæla í tengslum við störf þeirra og hafa þeir einnig skotið bandaríska ríkisborgara til bana. Þá hafa forsvarsmenn heimavarnaráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins verið harðlega gagnrýndir fyrir það hvernig haldið hefur verið á spöðunum í kringum valdbeitngu ICE-liða og tilfella þar sem þeir hafa beitt skotvopnum sínum. Starfsmenn ICE eiga á næstunni að fá búkmyndavélar en efni úr þeim verður ekki birt, nema forstjóri ICE telji tilefni til þess. Sjá einnig: Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Rafmagnshanskarnir eiga ekki að vera hættulegir. Hins vegar standa nú yfir málaferli þar sem því hefur verið haldið fram að 43 ára gamall maður hafi dáið vegna þeirra árið 2024. Sá fékk raflost með hönskunum 27 sinnum og þrettán sinnum með rafmagnsbyssu í fangelsi í Kentucky. Rannsókn leiddi í ljós að í tveimur tilfellum fékk hann raflost í 45 sekúndur annars vegar og 99 sekúndur hins vegar. Það er mun meira en fimmtán sekúndna hámarki sem framleiðendur hanskanna vísa til. Framleiðendurnir vara einnig við því að ekki eiga að beita hönskunum gegn eldra fólki, börnum, þunguðum konum og fötluðum. Það eru hópar sem ICE-liðar mæta reglulega, samkvæmt AP.
Bandaríkin Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira