Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 20:10 Helgi Magnús Gunnarsson lét af embætti vararíkissaksóknara í júní 2025. vísir/vilhelm Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi ríkissaksóknari segir sérstakt að erlendir fangar séu ekki látnir afplána ekki nema einn þriðja af refsingu sinni í sparnaðarskyni en með því sé verið að mismuna íslenskum föngum. Reynslulausn og brottvísun erlendra fanga sendi röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja.“
Greint var frá því í dag að Angjelin Sterkaj, sem var árið 2023 dæmdur til sextán ára fangelsisvistar í Hæstarétti fyrir morðið á Armando Beqirai fyrir utan heimili hans í Rauðagerði árið 2021, hafi þegar fengið reynslulausn og verið vísað úr landi. Brottvísun Angjelins byggir á nýlegri bráðabirgðalagabreytingu dómsmálaráðherra, sem heimilar að veita erlendum föngum sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Viðkomandi er að því loknu tafarlaust vísað úr landi og sætir í framhaldinu endurkomubanni til landsins og á Schengen-svæðið eftir atvikum. „Það er náttúrulega þannig að ríkið á að halda uppi fullnustu refsinga og dómstólar eiga að fullnusta dóma,“ segir Helgi Magnús en hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Sérstakt sé að dómstólar hafi ekki meiri þýðingu en svo að embættismenn geti breytt dómum. Með því að taka ákvarðanir um reynslulausn fanga sé verið að breyta niðurstöðu dómstóla en eðlilegt sé að dómstólar sjálfir ákveði það, eins og annað í tengslum við refsingar. „Af hverju á það að vera verkefni fyrir einhverja skrifstofumenn í ráðuneytinu eða annars staðar að velta fyrir sér hvort þeir eigi pening fyrir fangelsum og láta þar ráða niðurstöðunni? Ég er ekki alveg viss um að það sé skynsamleg aðferð,“ segir Helgi Magnús. Íslenskum föngum sé mismunað Helgi Magnús gagnrýnir það að refsingar erlendra fanga séu styttar í hagkvæmisskyni. „Það er orðið mjög sérstakt þegar við í sparnaðarskyni, eins og augljóst er tilfellið vegna þessara lagabreytinga að við höfum bara ekki haft undan að byggja fangelsi, ætlum bara að spara okkur pening með því að láta erlenda afbrotamenn ekki afplána nema einn þriðja af refsingunni. Það eru náttúrulega eiginlega algjörlega ótæk rök að mínu viti.“ Með slíkum aðgerðum sé verið að mismuna innlendum afbrotamönnum. „Við erum í fyrsta lagi að mismuna innlendum afbrotamönnum eða sem sagt við erum að hygla erlendum brotamönnum sem hingað koma með því að þeir bara sleppa út eftir einn þriðja.“ „Það eru algjörlega röng skilaboð að segja við menn að íslenskir afbrotamenn eigi að sitja af sér helming eða tvo þriðju á meðan erlendir glæpamenn sitja af sér einn þriðja. Og jafnvel fyrir mikið alvarlegri brot heldur en við höfum séð kannski nokkurn tímann hjá íslenskum afbrotamönnum,“ segir Helgi. Sendi þau skilaboð að „við séum lin á glæpamönnum“ Þá bjóði slíkar aðgerðir hættu skipulagðrar brotastarfsemi heim. Skipulagðir glæpahópar séu hluti af stærra kerfi og eigi sér vitorðsmenn erlendis. Refsingar á Íslandi séu þegar tiltölulega vægar, þó að dómarnir væru fullnustaðir. Íslensk stjórnvöld sendi með þessu þau skilaboð að afplánun dóma á Íslandi sé tiltölulega einföld og áhættan sé lítil. „Við erum þá að senda þau skilaboð til kaldrifjaðra morðingja sem geta tengst skipulagðri brotastarfsemi að þetta sé bara tiltölulega einfalt. Áhættan er sú að ef þú drepur mann hérna gegn einhverri greiðslu sem getur verið umtalsverð, þá þurfirðu ekki að sitja nema fimm ár, sem er nú ekkert mjög langur tími ef þetta er góð greiðsla. Svo ferðu bara heim. Jú jú, þú færð ekki að koma til Íslands aftur en hvað með það? Mig langar ekki til Íslands aftur, ég fór bara til að drepa mann. Það er engin refsing fólgin í því,“ segri Helgi Magnús. Hvaða skilaboð er verið að senda út í hinn stóra heim? „Bara að við séum bara lin á glæpamönnum,“ segir hann.
Morð í Rauðagerði Fangelsismál Bylgjan Reykjavík síðdegis Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira