Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar 14. ágúst 2026 14:00 Ofangreind fyrirsögn er til marks um hvert umræðan um hugsanlegt framhald viðræðna við ESB um fulla aðild að samtökunum er komin. Eitt af því sem er fullyrt er að um leið og við samþykkjum að ræða áfram við fulltrúa ESB um hugsanlegan samning séum við komin í aðildarferli sem ekki væri hægt að komast út úr. Við verðum föst í einhverskonar hakkavél sem setur okkur skyldur á herðar sem við verðum að gangast jafnharðan undir. Þess vegna verði ekkert úr síðari atkvæðagreiðslunni því Ísland verður þá komið inn í ESB án þess að hafa vitað af því og heldur ekki samþykkt – hvorki af þjóð né Alþingi. Jafnvel fyrrum forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, heldur þessu fram án þess að færa fyrir því nokkur rök; bara fullyrðir eins og hann gerði þegar hann staðhæfði um árið að EES-samningurinn væri úrelt plagg og gagnslaus fyrir Ísland. Reynslan var allt önnur eins og allir vita í dag og flestir brosa nú góðlátlega að þessum fullyrðingum fyrrum forseta. Og enn höldum við áfram að undrast þennan sérkennilega málflutning. Svo er sérstakur ráðgjafi Rússa, Carl Baudenbacher, kallaður til og fullyrðir að tilgangurinn með þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst sé einasta sá að ná þeim vendipunkti á leiðinni að ESB-aðild verði ekki snúið við aftur. Sem sagt: íslensk stjórnvöld, og þar á meðal sjálft Alþingi, séu úr hófi fram einföld og sitji auk þess á svikráðum við þjóðina rétt eins og rússnesk stjórnvöld gera við sína þegna og umræddur Carl þekkir mæta vel af nánum kynnum við þau. Þvílíkur málflutningur er sannarlega ekki boðlegur enda allt sem bendir til þess að íslensk stjórnvöld muni ganga af myndugleik til alvöru samninga við ESB og leggja niðurstöður þeirra fyrir þjóðina ef meirihlutinn samþykkir jáið næsta höfuðdag. Þau hafa margítrekað lýst vilja sínum til að láta reyna á samning en eru ekki svo skyni skroppin að dragast út í eitthvað fen sem þau skilja ekkert í og sprikla þar. Við höfum fulla trú á íslenskum stjórnvöldum og reynslumiklu samningafólki okkar þó svo að þessi maður telji þau tæpast hafa gripsvit í samningum eins og þessum og þess vegna óhætt að tala við Íslendinga eins og kjána. Ólafur Ragnar og viðhlæjendur hans staðhæfa ennfremur um þessar mundir að ESB, eða einstök ríki innan sambandsins, muni hirða allar auðlindir landsins ef við göngum þangað inn með fullri aðild. Allt verði frá okkur tekið enda þótt þeir geti ekki tilgrein dæmi um slíkan yfirgang í áratuga sögu ESB. Þannig muni það sem aldrei hefur gerst hæglega geta gerst aftur! Sannleikurinn er auðvitað sá að hvert ríki innan ESB hefur haldið sínum auðlindum óskertum eins og fyrir aðild og enginn getur vaðið þangað inn án samþykkis viðkomandi þjóðar. Varðandi staðbundna fiskistofna við Ísland gildir auðvitað áfram sú ESB-regla að þau ríki og fyrirtæki innan þeirra sem hafa ein veitt úr þeim stofnum gera það áfram samkvæmt reglunni um hlutfallslegan stöðugleika. Auðvitað verður að staðfesta það í samningum við ESB ásamt fleiri atriðum eins og sérstöðu íslensk landbúnaðar líkt og gert var í samningum við Svía og Finna. Ef við höfum ekki kjark til að setjast niður með fulltrúum ESB og ræða við þá um þessi mikilvægu málefni eins og fullvalda þjóð má segja að fáir nýir möguleikar sjái dagsins ljós hér á landi á næstunni. Einn þeirra er til dæmis sá að við gætum aukið útflutning fullunninna sjávarafurða til Evrópu fyrir allt að 55 milljarða króna eins og fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í dag er slíkur útflutningur ekki mögulegur vegna tolla sem við og önnur ríki utan ESB þurfa að greiða fyrir slíkar afurðir. Það mundi eitthvað muna um það fyrir þjóðarbúið og öll þau verkefni sem við þurfum vinna að til að byggja upp og bæta innviði landsins okkar. Einbeitum okkur að því að nýta þau tækifæri sem framundan eru og kanna til fulls hvað við komust langt í samningaviðræðum við ESB en ekki að mála skrattann á vegg út í hvert horn. Síðan getum við vegið kosti væntanlegs samnings og galla í næstu þjóðaratkvæðagreiðslu. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun