Innherji

Banda­rískur sjóður byggt upp um fimm pró­senta stöðu í kjöl­far út­boðs Al­vot­ech

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman, aðaleigandi og stjórnarformaður Alvotech, hefur sagt að markmiðið með hlutafjárútboðinu í maímánuði hafi meðal annars verið verið að breikka eigendahóp félagsins og ýta undir aukna veltu með bréf þess á markaði í Bandaríkjunum.

Bandarískur sjóður, sem hefur einkum lagt áherslu á fjárfestingar í heilbrigðistengdum fyrirtækjum, hefur byggt upp stóra stöðu í Alvotech í kjölfar útboðs líftæknilyfjafélagsins og er núna þriðji stærsti hluthafinn með nærri fimm prósenta hlut. Tveir þekktustu vogunarsjóðsrisar í heimi voru jafnframt meðal fjárfesta sem keyptu drjúgan hluta þeirra bréfa sem Alvotech seldi í hlutafjáraukningu félagsins í byrjun sumars.

Tengdar fréttir

Hækka verðmatið og segja Simponi geta orðið „vendi­punktur“ fyrir Al­vot­ech

Alvotech gæti séð fram á „verulegan ávinning“ eftir að samkeppnisstaðan á markaði fyrir hliðstæðulyf við Simponi hefur breyst félaginu í hag, samkvæmt SEB, sem hefur hækkað verðmat sitt um nærri þriðjung. Greinendur sænska bankans búast við að sölutekjur verði dræmar á öðrum fjórðungi en veðja á að markaðurinn muni endurmeta hlutabréfaverð Alvotech til hækkunar á næstu tólf til átján mánuðum.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×