Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar 17. ágúst 2026 15:46 Í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun var rætt við Ástu Stefánsdóttir, sveitarstjóra Bláskógarbyggðar og Harald Þór Jónsson oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps um neikvæð áhrif hækkunar virðisaukaskatts á baðlón á uppbyggingu ferðaþjónustu í nærsamfélögum á landsbyggðinni. Viðtalið kemur í kjölfar greinar sem Ásta og Haraldur birtu nýlega ásamt sveitarstjórnarfólki og sveitarstjórum í sjö öðrum sveitarfélögum þar sem þau fjölluðu um fjárfestingar á landsbyggðinni út frá skattahækkunaráform ríkisstjórnarinnar. Þar er farið yfir það hve mikil áhrif verða innan sveitarfélaga þegar einstaklingar og fyrirtæki fjárfesta í atvinnustarfsemi og hvernig áhrif slíkrar fjárfestingar liðast í gegnum samfélögin sem hefur svo jákvæð áhrif í för með sér á aðra starfsemi og stuðlar þannig að enn frekari uppbyggingu á viðkomandi svæði, fjölgun starfa o.s.frv. Greinin grípur vel að uppbygging samfélaga verður ekki til af sjálfu sér heldur m.a. vegna þess að einstaklingar og fyrirtæki eru tilbúin að taka áhættu byggða á framtíðarsýn og stöðugu rekstrarumhverfi. Eftir að hafa lesið grein sveitarstjórnarfólks í níu sveitarfélögum á landsbyggðinni, , hlustað á þau Ástu og Harald og séð gagnrýnar umsagnir baðlóna og sveitarfélaga um skattahækkunina í fjármálaáætlun stendur furðu skýrt upp úr hversu auðvelt það virðist vera fyrir stjórnvöld að taka ákvarðanir án þess að horfast í augu við heildarmyndina og afleiðingarnar sem þær kunna að hafa. Ákvarðanir hafa áhrif Samtök ferðaþjónustunnar hafa ítrekað talað um mikilvægi fyrirsjáanleika fyrir atvinnulífið en fyrirsjáanleiki virðist allt of oft víkja þegar kemur að ákvörðunum og skyndilausnum hjá stjórnvöldum hverju sinni. Við erum með raunverulegt dæmi hér á Íslandi um óvandaða ákvörðunartöku þegar kemur að innviðagjaldi á skemmtiferðaskipafarþega. Þvert á gefin loforð var innviðagjaldið á skemmtiferðaskip innleitt með skömmum fyrirvara. Þessi skortur á fyrirsjáanleika hefur valdið því að farþegafjöldi og komur skemmtiferðaskipa hafa hríðfallið með tilheyrandi neikvæðum áhrifum, sér í lagi á minni hafnir og smærri byggðir landsins og ekki síst á tekjur ríkissjóðs. Erum við nú að fara að endurtaka sömu mistök með skattahækkun á aðgang að baðlónum? Svona ákvörðun snýst ekki bara um að auka tekjur ríkissjóðs eða plús/mínus í útreikningum ráðuneytanna. Hún snýst um rekstrarumhverfi fyrirtækja, þær fjárfestingar sem hafa byggst upp víða um landið á síðastliðnum áratugum og framtíðaráform. Um fyrirtæki sem hafa skapað störf á landsbyggðinni. Um sveitarfélög sem hafa mótað sína framtíðarsýn á ákveðinni atvinnustarfsemi. Og samfélög sem hafa byggst upp í kringum störfin. Ákvörðunin snýst nefnilega um heildarmyndina. Við eigum að spyrja fleiri spurninga en bara hversu miklum tekjum skattabreytingunum er ætlað að skila í áætlun næsta árs. Við þurfum m.a. að spyrja hvaða fjárfestingu verður ekki ráðist í? Hvaða störf verða ekki til? Hvaða tækifæri glatast? Eins og sveitarstjórnarfólkið bendir á í sinni grein þá geta illa áhrifametnar ákvarðanir dregið úr fjárfestingum og tækifærum sem eru gríðarlega mikilvæg, sér í lagi fyrir minni samfélög á landsbyggðinni. Í stóru myndinni getur nefnilega sú ákvörðun að taka ekki lélega ákvörðun bæði skilað meira klinki í kassa stjórnvalda þegar fram líða stundir og ýtt undir jákvæð samfélagsleg áhrif hringinn í kringum landið. Þess vegna væri alveg næs ef stjórnvöld færu nú aðeins að vanda sig. Höfundur er verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skattar, tollar og gjöld Sundlaugar og baðlón Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar