Allt gert til að stöðva birtinguna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. ágúst 2026 17:48 Jón Bjarnason fór í saumana á atburðarás síðustu aðildarviðræðna í Vísi að viðræðum. Grafík/Sara Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar.
Í fyrsta þætti Vísis að viðræðum rekur Jón þessa sögu frá sínu sjónarhorni: stjórnarmyndunina, varnagla Alþingis, umsóknarbréfið, makrílinn, óþægilega rússíbanareið og hótelið fræga í Kaliforníu. Jón segir það meðal annars alltaf hafa legið fyrir að sjávarútvegskafli viðræðnanna yrði ekki opnaður fyrr en Ísland gæfi draumóra sína um forráð yfir fiskimiðum og makrílkvóta upp á bátinn. „Af þeim ástæðum var sjávarútvegskaflinn aldrei opnaður. Þeir neituðu að samþykkja þessa fyrirvara, þessi skilyrði sem við settum varðandi sjávarútveg og vildum bara að sjávarútvegurinn væri utan við þessa samninga,“ sagði hann. Makríllinn felldi samningana Þessi harða afstaða hans féll, eins og gefur að skilja, ekki vel í kram samráðherra hans og þingflokki Samfylkingarinnar sem hann segir hafa leitað leiða til að losa sig við hann frá fyrsta degi. Þegar ljóst var í hvað stefndi um áramótin 2011-2012 tók hann örlagaríka ákvörðun. „Þannig að Steingrímur kemur og mér er tilkynnt þarna um áramótin 2011 að nú verði ég að fara. Þeir umberi þetta ekki lengur, svona ákveðinn mann sem að berst svona fyrir hagsmunum þjóðarinnar. En þá var makrílákvörðun. Ég vissi alveg að makríllinn var stóra deilumálið, það var svona þröskuldurinn. Og ráðherra hefur heimild til þess að gefa út sko makrílkvóta fyrir næsta ár,“ sagði Jón en Ísland hafði þá staðið í deilu við Evrópusambandið um makríl sem slæðst hafði inn í íslenska lögsögu en Brussel hafði ekki í hyggju að leyfa okkur að veiða. Laumaði inn kvóta síðasta daginn í stólnum Síðasta dag hans í ráðherrastól gaf hann út makrílkvóta. „Það var aldrei ágreiningur um það að við skyldum veiða makrílinn. Alla vega enginn opinber. En það að ætla að standa frammi fyrir Íslendingum og segja: „Heyrðu, við ætlum ekki að veiða makríl,“ hvaða ríkisstjórn hefði þorað það? Og þarna er komið þarna að síðasta deginum og ég segi: „Jæja, við skulum nú bara ganga frá þessu. “ Og þá gef ég út síðasta, jæja, gef ég út makrílkvótann fyrir árið 2012 upp á einhver 140-50 þúsund tonn. Það er svo birt í Stjórnartíðindum klukkan fjögur síðasta daginn sem ég átti að vera ráðherra, til þess að það verði nú ekki haft af. Ég vissi að það myndi nú vera reynt að stoppa þetta sko, að það sé það. Og síðan fer það út. Og þá náttúrulega verður allt vitlaust,“ sagði Jón. Vísir að viðræðum er hlaðvarp úr smiðju Vísis sem kemur út alla virka daga fram að stóru stundinni.
Hlaðvarp Vísis Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Vísir að viðræðum Vinstri græn Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira