Vísir að viðræðum
Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Íslendingar greiða atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið á tíma þar sem ESB er í mikilli naflaskoðun vegna breyttrar heimsskipanar. Þetta er mat fréttamanns Politico sem þekkir vel til í ESB, en hann hefur skyggst á bakvið tjöldin í Brussel. Innlent 28.8.2026 19:23
Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Tveir ungir vinstrimenn tókust á í Vísi að viðræðum um það hvort Ísland ætti að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ungur VG-liði hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins en ungur jafnaðarmaður segir ESB hafa gert margt til að tryggja réttindi vinnandi fólks. Þeir segjast þó bera virðingu fyrir sjónarmiðum hvor annars; enginn sé að vinna fjallkonunni nokkurt mein. Innlent 28.8.2026 08:00
Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“. Innlent 27.8.2026 23:12
EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Norðmenn fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, ekki síst sjávarútvegsmenn. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum. Innlent 27.8.2026 18:50
Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum „Við sjáum ekki undir hvaða kringumstæðum hægt er að fá ítarlegri sérlausn en Finnar,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamataka, í nýjasta þætti Vísis að viðræðum. Hún telur einu leiðina til þess að íslenskir bændur geti fengið eitthvað fyrir sinn snúð innan Evrópusambandsins sé með undanþágu frá allri landbúnaðarstefnu ESB, sem sé vægast sagt hæpið. Innlent 26.8.2026 14:41
Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli „Alþjóðlega andrúmsloftið var allt annað þá. Ísland var nýkomið úr bankahruninu. Íslenskir fjármálamenn alræmdir. Það var afskaplega lítið traust úti í Evrópu til íslenskrar efnahagsstefnu og fjármála,“ segir Þorsteinn Gunnarsson varaformaður íslensku samninganefndarinnar í síðustu aðildarviðræðum. Innlent 25.8.2026 16:25
Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra úr röðum Samfylkingarinnar, telur raunhæft að samið verði um það í viðræðum við Evrópusambandið að hafið í kringum Ísland yrði sérstakt stjórnsýslusvæði um fiskveiðar. Hún segist ekki vera sami Evrópusinni og hún var áður og lítur ekki svo á að hugsanlegar aðildarviðræður snúist um að „kíkja í pakkann“, heldur sé um „harðar samningaviðræður“ að ræða. Innlent 24.8.2026 14:13
Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu „Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins. Innlent 21.8.2026 16:27
„Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna. Innlent 20.8.2026 15:56
„Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ „Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum. Innlent 19.8.2026 12:30
„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt. Innlent 18.8.2026 19:56
Allt gert til að stöðva birtinguna Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar. Innlent 17.8.2026 17:48