Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. ágúst 2026 14:46 Ulf Kristersson er formaður hægriflokksins Moderaterna og forsætisráðherra Svíþjóðar. AP/Vesa Moilanen Stjórnarandstaðan í Svíþjóð mælist tíu prósentustigum yfir stjórnarflokkunum í aðdraganda þingkosninganna í september. Ulf Kristersson forsætisráðherra segir kjördag telja.
Samkvæmt nýrri könnun sænska ríkisútvarpsins SVT mælast stjórnarflokkarnir Moderaterna, Frjálslyndi flokkurinn (Liberalerna) og Kristilegir demókratar, auk stuðningsflokks ríkisstjórnarinnar, Svíþjóðardemókrata, með 43,9 prósenta fylgi. Andstöðuflokkar Sósíaldemókrata, Græningja, Miðflokksins og Vinstriflokksins mælast samanlagt með 53,9 prósenta fylgi. „Skoðanakannanir eru skoðanakannanir og það er kjördagur sem telur. Í síðustu kosningum vorum við undir í öllum könnunum, líka á sjálfan kjördaginn, en samt unnum við. Þetta sveiflast upp og niður. Við erum vön,“ hefur sænska fréttaveitan TT eftir Ulf Kristersson forsætisráðherra. Henrik Ekengren Oscarsson, prófessor í stjórnmálafræði við Gautaborgarháskóla, ræddi við VG um þær mögulegu ályktanir sem hægt er að draga af niðurstöðunum. „Það sem skiptir máli er að halda rónni. Það á eftir að birtast fjöldi kannana fram að kosningum og það er ekki fyrr en við höfum fleiri að hægt sé að segja eitthvað af viti,“ sagði hann. Að hans sögn er oft lítil hreyfing á skoðanakönnunum yfir sumarmánuðina, og að litlar breytingar hafi orðið frá því í júní komi ekki á óvart. Hann bendir jafnframt á að margir kjósendur fari fyrst að finna fyrir nálægð kosninganna þegar rafrænir kjörseðlar berist í pósthólfið, og að þeir sem ekki fylgist stöðugt með stjórnmálum vilji þá kynna sér málin betur. Þingkosningar fara fram í Svíþjóð þann 13. september næstkomandi.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira