Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Agnar Már Másson skrifar 19. ágúst 2026 01:01 Þetta kemur fram í yfirlýsingu rússneska sendiráðsins í Noregi. Þetta er fyrsta opinbera yfirlýsing frá rússneskum stjórnvöldum vegna atkvæðagreiðslunnar á Íslandi, eftir því sem fréttastofa kemst næst. AP/ Sergei Bobylev, Sputnik Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016. „
Það er tilgangslaust að leita að sönnunargögnum þar sem engin slík er að finna,“ segir í yfirlýsingu sem sendiráð Rússlands í Noregi birti opinberlega að tilefni fyrirspurnar norska blaðsins Aftenposten. Rússar hafa fram að þessu ekki gefið út neinar opinberar yfirlýsingar vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu en íslensk stjórnvöld hafa varað við hugsanlegum erlendum afskiptum. „Rússland hefur engan ásetning til að hafa áhrif á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi,“ segir enn fremur í yfirlýsingu sendiráðsins en þar er því einnig haldið fram að Rússar leitist ekki við að hafa áhrif á innanríkismál í öðrum löndum. Heldur sakar sendiráðið Evrópusambandið um að reyna að hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna. Sagði áreitið svo ákaft að „Viðreisnarbottarnir“ hlytu að vera gervireikningar Aftenposten í Noregi hefur gert atkvæðagreiðsluna á Íslandi og hina svokölluðu „viðreisnarbotta“ að umfjöllunarefni sínu. Viðreisnarbottar virðast vera hjörð netþjarka sem dúkkaði upp í ummælakerfi undir Facebook-færslu frá forstjóra Vélags og í ummælakerfi undir færslum Viðreisnar. Þar gagnrýndu þessir meintu notendur forstjórann og hlóðu jafnframt lofi yfir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar, gjarnan á bjagaðri íslensku. Norski miðillinn hefur meðal annars undir höndum tölvupósta Svanborgar Sigmarsdóttur, framkvæmdastjóra flokksins, þar sem hún tilkynnir bottana til lögreglu hinn 19. maí, en málið rataði fyrst í fjölmiðla 15. maí. Þar skrifar Svanborg að bottarnir hafi áreitt andstæðinga Evrópusambandsins svo opinberlega að henni þætti ósennilegt að um raunverulega reikninga væri að ræða. Nokkrum af reikningunum hefur nú verið eytt. Þorgerður Katrín hefur sagt „Viðreisnarbottana“ vera skýrt dæmi um að erlend ríki reyni að hafa áhrif. „Það er augljóst að þetta kemur frá ákveðnum stöðum erlendis frá til þess að hafa áhrif á innlenda umfjöllun,“ sagði hún um bottana í viðtali í Reykjavík síðdegis í sumar. Væri ekki í fyrsta sinn Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem Rússar eru sakaðir um afskipti af atkvæðagreiðslum í Evrópu. Eftir Brexit-kosningarnar í Bretlandi 2016, þar sem Bretar gengu úr ESB, komst breska eftirlitsstofnunin ISC að þeirri niðurstöðu að breska ríkisstjórnin hefði aldrei gert allsherjarathugun á áhrifum Rússa á atkvæðagreiðsluna en benti á fjölda vísbendinga um að Rússar hefðu reynt að hafa áhrif. Aftenposten nefnir fleiri dæmi, svo sem forsetakosningar í Frakklandi árið 2017 þar sem rússneskir hakkarar gerðu árás á kosningaskrifstofu Emmanuels Macrons Frakklandsforseta. Þá er einnig talið að Rússar hafi reynt að hafa áhrif á þingkosningar í Rúmeníu árið 2024. „Við erum ekki barnaleg, við fylgjumst með þessu,“ er haft eftir Þorgerði í Aftenposten. Leiklist Surkovs Það er erfitt að leggja mat á áhrifin af slíkum aðgerðum, að sögn Paul Buvarp sem er sérfræðingur hjá norsku varnarmálastofnuninni, FFI, samkvæmt umfjöllun norska miðilsins. Það sé smá eins og að spyrja: „Var það einmitt þessi sígaretta sem gaf mér lungnakrabbamein?“ Buvarp ber þetta saman við leikjafræði Vladíslavs Surkov, fyrrverandi ráðgjafa Vladimírs Pútíns. Sá hafi í stjórnmálunum nýtt bakgrunn sinn úr póststrúktúralísku leikhúsi, þar sem hægt væri að brjóta niður sannleik og fá fólk til að efast um það sem það telur gefinn hlut. Buvarp útskýrir að Surkov hafi til dæmis bæði fjármagnað nýnasistahreyfingar og baráttuhópa fyrir réttindum samkynhneigðra, og bæði stéttarfélög námuverkamanna og jafnframt umhverfisverndarsamtök. „Það er auðveldara að fá fólk til að efast heldur en að fá það til að trúa einhverju,“ er haft eftir sérfræðingnum. Íslensk stjórnvöld hafi brýnt fyrir ESB Í umfjöllun Euractiv frá því í síðustu er haft eftir tveimur ónafngreindum embættismönnum í Evrópusambandinu að íslensk stjórnvöld hafi brýnt fyrir ráðamönnum sambandsins á bak við luktar dyr að gera ekki tilraun til að hafa áhrif á kosningarnar í lok ágústs. Finnbogi Jónasson hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra sagði við Vísi í síðustu viku að deildin fylgdist grannt með hugsanlegum gerviaðgöngum á samfélagsmiðlum og grunsamlegum vefsíðum til að athuga hvort erlendir aðilar sigldu þar undir fölsku flaggi til að að ýta niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar um ESB í aðra hvora áttina. Hann vildi ekkert gefa upp um það hvort lögregla hefði fundið nokkuð grunsamlegt en athugu lögreglu snýr aðallega að hugsanlegum brotum gegn lagagreinum í X. kafla hegningarlaga (landráð) og XI. kafla (brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess). „Það sem við höfum helst verið að skoða er sá vinkill á hvort við sjáum annaðhvort að erlend stjórnvöld séu beint að reyna að hafa áhrif eða séu að setja sig í samband við einstaklinga hér á landi, eða einstaklingar hér á landi að setja sig í samband við erlend stjórnvöld til að fá einhvers konar fjármagn til að reka starfsemi sem er að vinna í þessari kosningabaráttu,“ sagði Finnbogi við Vísi. Sem fyrr segir kveðast Rússar ekki hafa nokkurn áhuga á að hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna en þeir vilja meina Evrópusambandið sem reyni að hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna og vísa þar meðal annars til opinberra ummæla franska utanríkisráðherrans um að Íslendingar hafi engu að tapa við að ganga inn í Evrópusambandið. Þögn frá Bandaríkjunum Sem fyrr segir er þetta fyrsta opinbera yfirlýsing frá rússneskum stjórnvöldum um málið, eftir því sem fréttstofa kemst næst. Ráðamenn í Kína og Bandaríkjunum hafa heldur ekki tjáð sig opinberlega um málið, eftir því sem fréttastofa kemst næst. Þá vildu sendiráð Kína og Bandaríkjanna á Íslandi ekki tjá sig um málið þegar Vísir spurði fyrir um afstöðu ríkjanna til atkvæðagreiðslunnar.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Rússland Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Netöryggi Brexit Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Skilorð fyrir að tvíkjálkabrjóta sambýliskonu sína Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Sjá meira