Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski skrifar 20. ágúst 2026 22:00 Ég heiti Roza Matijević Ismailovski og er 16 ára króatísk stelpa sem útskrifaðist úr Grunnskólanum á Ísafirði í vor. Þegar ég kom til landsins var ég bara 11 ára og kunni litla íslensku. Ég byrjaði í 6. bekk og var í GÍ í 5 ár. Ég er ágæt í íslensku en ætti að vera miklu betri. Tíminn í GÍ var ágætur en það er nokkur atriði sem mér finnst að GÍ þurfi að skoða og laga. Ég ætla að skrifa tvær greinar. Fyrsta greinin er um íslensku. Það er oft gert grín að framburði útlenskra barna og málfræðivillum. Ekki bara önnur börn heldur líka starfsfólk og kennarar. Með því að gera lítið úr fólki sem er að reyna að ná tökum af nýju máli erum við alls ekki að hvetja fólk til að halda áfram og gefast ekki upp. Mikið af útlenskum börnunum misstu allt sjálfstraust við þetta og hættu að reyna og byrjuðu að tala ensku í staðinn. Ég var ein af þeim. Ég talaði oft ensku við hina útlendingana og stundum við einn Íslending líka. Þegar við vorum gagnrýnd fyrir það sögðum við ástæðuna en það hafði ekki áhrif. Kennarar sögðu við okkur: „talið íslensku krakkar“ en það var allt sem þeir sögðu og gerðu. Mikið af starfsfólki talar ekki íslensku og tala því á ensku við okkur í skólanum (ekki kennarar samt). Íslendingar í samfélaginu tala líka ensku við mig, líka þegar ég tala íslensku við þá. Og svo eru lítil sem engin samskipti milli útlendinga og Íslendinga í skólanum. Verst er að það virðist ekki vera áhugi til að gera umhverfið betra fyrir íslensku. Fólk þarf að skilja að við erum að læra, við erum að tjá okkur á máli sem er ekki móðurmál okkar og það er eðlilegt að við gerum mistök. Það hjálpar ekki að gera grín að þeim og gera lítið úr okkur. Það þyrfti að reyna að laga þetta og fræða fólk. Hvernig íslenska er kennd er ekki frábært heldur. Þar er skortur á umræðu. Það er engin hvatning til að móta sínar eigin hugsanir á íslensku, leita að rökum til að nota málið. Það er sagt „svona er þetta bara“, lítið er útskýrt, lítið er rætt um af hverju hlutir eru eins og þeir eru og nemendur ekki hvattir til að spyrja eða ræða málin. Að nota málið, og vera látin nota málið hjálpar fólki í að verða betri í því. Þetta gildir um flest fögin í skólanum. Og málfræði eins og hún er kennd í venjulegum íslenskutímum virkar ekki þegar maður hefur ekki máltilfinningu. Máltilfinningu fær maður við að nota málið. Útlendingar hafa máltilfinningu fyrir eigin máli ekki íslensku. Þess vegna get ég t.d. ekki notað orðið hestur til að finna fall orðs ef ég veit ekki hvaða falli orðið (sagnorð eða forsetning) stýrir. Sú kennsluaðferð virkar bara á börn með máltilfinningu. Þetta er gömul aðferð. Til að kenna útlenskum börnum íslensku þarf að hafa umræður, nota málið, gefa samheiti gefa útskýringar. Það er bara ekki nóg að lesa upp verkefnið og gefa okkur blýant til að gera verkefni. Kennslan þarf að vera lifandi og krefjandi og kannski smá eins og skólinn vilji virkilega að börnin læri málið almennilega. Eina undantekning var kennsla íslensku sem annars máls. Þar var virkilega allt gert sem mér finnst eigi að gera til að kenna börnum nýtt tungumál. Vandamálið er samt að það þarf íslensku sem annað mál. Best væri ef við lærum íslensku með að nota hana almennt. Það síðasta sem ég ætla nefna er að enskan er alls staðar, í féló, á skíðasvæðinu, í frístundastarfi, jafnvel í skólanum sjálfum hjá starfsfólki og svo framvegis. Hvernig eiga útlensk börn að ná fjölbreyttum orðaforða þegar enska er töluð hvert sem þau fara? Svarið er að þau geta það ekki eða geta það mjög illa. Það er ekki skrítið að mörg erlend börn, börn sem eiga erlenda foreldra en eru fædd á Íslandi kunna betri ensku en íslensku. En samt er það skrítið. Svona var þetta í Grunnskólanum á Ísafirði. Svona er þetta örugglega í fleiri skólum á Íslandi. Það þarf að laga þetta. Íslenska er grunnur að öllu á Íslandi. Höfundur er að byrja í menntaskóla en ekki á Íslandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun