Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Lovísa Arnardóttir skrifar 21. ágúst 2026 14:16 Meirihlutinn samþykkti breytinguna á aukafundi í dag. Vísir/Vilhelm Samþykkt var á aukafundi skóla- og frístundaráðs að fella niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla. Skólaráð skólans harmar ákvörðunina og leggur áherslu á að tryggt sé að gönguleiðir úr Suðurhlíðum séu öruggar allt árið um kring. Breytingin gerir ráð fyrir að snjómokstri sé alltaf lokið fyrir klukkan átta á morgnana.
Í tillögu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs kemur fram að skólaaksturinn kosti um 450 þúsund á mánuði eða 4,1 milljón á ári miðað við að hann standi í níu mánuði. Áætlað sé að þetta skólaár séu 55 nemendur með lögheimili í Suðurhlíðahverfi og líklegt sé að fjórtán til sextán börn muni nýta skólaaksturinn í Hlíðaskóla að morgni samkvæmt upplýsingum frá skólastjóra. Allir nemendurnir búi innan fjarlægðarviðmiða reglna um strætókort, það er innan 1,5 km í 1. til 4. bekk og 2 km vegna nemenda í 5. til 10. bekk. Þá segir að samkvæmt greiningu sé gönguleiðin fyrir nemendur úr Suðurhlíðum á bilinu 815–1390 metrar. Tekið er fram að það er mat skrifstofu skóla- og frístundasviðs að gönguleiðin sé ekki erfiðari en gengur og gerist í borginni. Að mestu sé gengið á göngustíg eða meðfram götu með 30 kílómetra hámarkshraða þar sem mikið er af hraðahindrunum og svo er farið um undirgöng, yfir ein ljós um hjólastíg og yfir gangbraut við grunnskólann. Gangan taki 20 til 30 mínútur Í umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar kemur fram að það megi áætla að það taki nemendur á bilinu 20 til 30 mínútur að ganga, fyrir þá sem lengst búa frá. Ástand og öryggi gönguleiða sé að stærstum hluta sambærilegt við það sem gerist víða annars staðar innan hverfa borgarinnar. Hámarkshraði gatna sem þarf að þvera á plani er alls staðar 30 km/klst. Hámarkshraði á Bústaðavegi er 50 km/klst. en undirgöng eru undir Bústaðaveg við Birkihlíð þannig að ef gengið er í skólann þarf ekki að fara yfir Bústaðaveg. Þá kemur fram að fyrir vetrartímabilið hafi skrifstofan lagt fram beiðni um hækkun forgangs snjómoksturs á stystu gönguleiðum milli Suðurhlíða og Hlíðarskóla og að honum ætti þannig að vera lokið fyrir klukkan átta á morgnana, í stað klukkan 12 eins og er núna. Með þessari breytingu metur skrifstofan að þörfin fyrir skólaakstur minnki samhliða þessari breytingu. Þá er bent á í umsögninni að framkvæmdir við Veðurstofuhæð geti haft áhrif á aðgengi og ítrekað í umsögninni að byggingaraðilar tryggi viðunandi umferðaröryggi og gæði gönguleiða. Skólaráð Hlíðaskóla tók þessa breytingu fyrir á fundi þann 14. ágúst á aukafundi. „Skólaráð Hlíðaskóla harmar að skólaakstur leggist af en leggur áherslu á að tryggt sé að gönguleiðir úr Suðurhlíðum séu öruggar allt árið um kring og snjómokstri sé örugglega lokið fyrir skólabyrjun.“ Umsögn skólaráðs Hlíðaskóla Samþykkja en árétta mikilvægi umferðaröryggis Skóla- og frístundaráð fundaði á aukafundi í dag vegna málsins. Þar kemur fram að meirihlutinn styðji tillögu sviðsstjóra á grundvelli faglegs mats um öryggi gönguleiða og gildandi viðmiða um vegalengdir til skóla. „Fyrir liggur að leiðirnar uppfylla þau skilyrði sem gilda um reglubundinn skólaakstur og að gripið verði til frekari öryggisráðstafana og umbóta á vetrarþjónustu á svæðinu. Mikilvægt er að ákvörðunin og framkvæmd hennar verði vel kynnt foreldrum og skólasamfélaginu og að fylgst verði náið með áhrifum breytingarinnar á ferðir barna til og frá skóla. Meirihlutinn leggur áherslu á að fylgst verði með framgangi málsins og þeim áskorunum sem kunna að koma fram eftir innleiðingu breytingarinnar og þeim verði mætt eins og hægt er,“ segir í bókun meirihlutans en Bjarni Fritzson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er formaður ráðsins. Breyting er á snjómokstri úr gönguleiðum úr Suðurhlíðum og á honum að vera lokið klukkan átta á morgnana. Vísir/Vilhelm Sanna Magdalena Mörtudóttir, fulltrúi Vinstrisins, og Stein Olav Romslo, fulltrúi Samfylkingarinnar, gagnrýna ákvörðunina og stuttan fyrirvara hennar. „Fyrir börn og sérstaklega þau yngstu er um talsverða vegalengd að ræða, allt að 1,4 kílómetra, sem áætlað er að taki börn sem búa lengst frá skólanum hátt í hálftíma að labba. Þó að vegalengdin sé innan fjarlægðarviðmiða sem gilda um reglubundinn skólaakstur, þá er vert að taka fram að fyrirhugaðar framkvæmdir við uppbyggingu á Veðurstofuhæð munu hafa áhrif á umferðarflæði sem og umferðaröryggi á svæðinu. Það liggur fyrir að um 15 börn myndu nýta skólaaksturinn á skólaárinu sem hefst eftir 3 daga. Því er um mjög skamman fyrirvara að ræða,“ segir í bókun þeirra og er bent á að samkvæmt reglum borgarinnar eigi að taka slíka ákvörðun fyrir 1. júlí hvert ár. „Auk þess er kveðið á um að samþykki fyrir reglubundnum skólaakstri er ótímabundið og gildir nema forsendur breytist en við sjáum ekki að forsendur hafi breyst í þessu tilviki með tilliti til öryggis barna. Telja fulltrúarnir því mikilvægt að skólaaksturinn sé til staðar,“ segir að lokum.
Reykjavík Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira