Innlent

Bændur ó­ró­legir vegna skorts á dýra­læknum

Bjarki Sigurðsson skrifar
hádegisfréttir

Grafalvarleg staða er á Suðausturlandi þar sem enginn dýralæknir er starfandi á stórum hluta svæðisins og fá bændur því enga heilbrigðisþjónustu fyrir veik og slösuð dýr. Þetta segir formaður Dýralæknafélags Íslands sem segir bændur órólega og stjórnvöld engu svara.

Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

Sautján ára stelpa er látin og tveir drengir undir átján ára aldri eru alvarlega slasaðir eftir sverðaárásina í Fagersta í Svíþjóð í gær.

Í dag er menningarnótt og viðburðir, tónleikar og sýningar víða um Reykjavík í allan dag af því tilefni. Borgarstjóri segir veðrið ekki jafn slæm og það lítur út fyrir að vera.

Nokkrir eru látnir eftir að lögreglubíll lenti í árekstri nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Lögreglumenn höfðu verið að elta uppi Volkswagen Passat bifreið þegar áreksturinn varð.

Réttarhöld yfir bandarískri konu, sem játað hefur að hafa myrt börnin sín þrjú, hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Mikill fjöldi fylgist með réttarhöldum í beinni útsendingu á degi hverjum og hefur málið hrundið af stað umræðu um fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun.

Í íþróttafréttum fjöllum við um Reykjavíkurmaraþonið þar sem met hafa fallið og ræðum leiki dagsins í fótboltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×