Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. ágúst 2026 06:49 Lögregla sinnti ýmsum afar ólíkum verkefnum í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt þegar leigusali hafði samband og sagði leikutaka til vandræða. Þegar á vettvang var komið reyndist leigutakinn vera sofandi inni hjá sér. Leigusali fór þess á leit við lögreglu að hún aðstoðaði leigutaka til að leita sér aðstoðar vegna áfengissýki en lögregla sagði það ekki sitt hluverk.
Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar. Þar segir einnig frá því að lögregla hafi verið kölluð til þegar strætóbílstjóri óskaði eftir aðstoð vegna ógnandi farþega. Viðkomandi reyndist „víðáttuölvaður með kjaft og leiðindi“ og hafði reynt að hella bjór yfir einn farþega og kýla annan. Maðurinn var handtekinn og við öryggisleit fundust á honum ætluð fíkniefni í smelluláspokum. Lögregla fór einnig eftirför á eftir ökumanni sem neitaði að nema staðar. Hann stoppaði loks við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Ökumaðurinn hafði farið yfir hámarkshraða á vegum og ekið gegn nokkrum rauðum ljósum með lögreglu á eftir sér. Hann var handtekinn og reyndist undir áhrifum fíkniefna. Tilkynnt var um yfirstandandi innbrot í fyrirtæki í Kópavogi en hinir óprúttnu voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að. Málið er í rannsókn.
Lögreglumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira