Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar 25. ágúst 2026 09:32 Vinkona mín flutti til Íslands 2011. Á nokkrum árum náðu hún og maðurinn hennar að safna nægum pening til að kaupa íbúð í Grafarvogi. Þegar þeirri fjárfestingu var lokið héldu þau áfram að vinna og safna og hófu svo að byggja sér einbýlishús í heimalandi sínu, Póllandi. Setjum þetta í samhengi. Íslensk hjón flytja til Póllands, vinna mikið og ná meðallaunum þar í landi. Þau kaupa sér íbúð, segjum í úthverfi Gdansk og halda svo áfram að vinna og safna. En gætu þau með þeim hætti keypt sér íbúð á Íslandi, jafnvel einbýlishús? Það er erfitt að ímynda sér slíkt. Á Íslandi eru hvað hæstu laun í heimi en hér er líka dýrt að lifa. Í Póllandi eru lág laun í samanburði en ódýrt fyrir þá sem hafa íslensk laun að lifa. Á Íslandi er matarkarfan 80% dýrari en í Póllandi. Á Íslandi eru meðaltalslaun 913 þúsund krónur og miðgildi launa 826 þúsund. Í Póllandi eru meðaltalslaun 291 þúsund krónur og miðgildi launa í kringum 250 þúsund krónur. Þessar tölur koma annars vegar frá Hagstofu Íslands og hins vegar frá pólsku hagstofunni. Þetta gerir það að verkum að laun á Íslandi eru 284% hærri en í Póllandi. Það er kannski ekki skrítið að Íslendingar fara ekki í umvörpum til Póllands til þess að safna sér fyrir séreign á Íslandi? Ef við skoðum svo húsnæðismálin. Þau hafa verið í ólestri á Íslandi lengi. Fasteignaverð keyrt upp í einhverjum þenslum og svo framvegis. Það er raunar ótrúlegt hvað ein 80fm íbúð kostar á Íslandi. Slík íbúð í nýbyggingu getur kostað um 70-80 milljónir á vinsælum svæðum. En ef við skoðum Pólland þá seljast slíkar íbúðir í Gdansk á 30-40 milljónir króna. Þetta þýðir að hátt íbúðaverð á Íslandi er um 750-800% af meðaltali árslauna. Í Póllandi er þetta hlutfall 1000%. Talandi um galinn húsnæðismarkað? Það er enginn mótfallinn lægri vöxtum og verðlag mætti hækka hægar. En það verður að setja alla hluti í samhengi og umræðan um þessi mál er af hálfu já-fólks samhengislaus. Á Íslandi búa 47.753 manns frá ríkjum Evrópusambandsins. Miðað við það sem hér er nú þegar upptalið í þessari grein er ærleg ástæða fyrir því. Margir Íslendingar búa erlendis, stunda þar nám og hafa fundið vinnu námi sínu til hæfis. Vel menntað fólk frá Íslandi er nefnilega í stöðu til þess að lifa góðu lífi bæði hérlendis og erlendis. Það er ástæða til að hafa þetta allt í huga þegar ESB-sinnar sjá ægifagrar grænar graslendur í Evrópu á meðan hér á landi sé það hin leiðinlega og hversdagslega grámygla sem ræður ríkjum. Staðan er hins vegar ekki góð í Evrópusambandinu og fer versnandi. Aukin fjárútlát til hernaðarbrasks og síhækkandi skuldir aðildarríkja eru til marks um að framundan sé niðurskurður í því sem kalla má velferð á þeim slóðum. Þá hefur atvinnuleysi löngum verið Evrópusambandinu erfitt viðureignar og ekki er að sjá neina breytingu þar á. Ríkisstjórn Íslands inniheldur samanstendur af tveimur flokkum sem eru áþjánarsystkyni gagnvart því að Ísland gangi í Evrópusambandið og þriðja flokknum sem er.. hvað á að segja? Hækja? Þessi ríkisstjórn býður nefnilega ekki upp á lausnir í nokkrum einustu málum. Smáplástrar sem þekja tímabundið gat á hinum ævagamla valdastrúktúr Íslands. Aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi verka sem krem sem viðheldur sárum. Snákaolían sú! Þeir valdamiklu halda sínu en þeir valdalausu verða hlekkjaðir í ævarandi kröfu Evrópusambandsins að hér skuli vera verð-, lífskjara- og launastöðnun. Nei er ókei og opnar dyr fyrir okkur öll að hefja upp umræðuna sem aldrei fyrr að valdahlutföllunum verði breytt til frambúðar! Höfundur er stjórnmálafræðingur og starfar sem sjómaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar