Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega Freyja Þórisdóttir skrifar 25. ágúst 2026 13:38 Það er um þessar mundir sem björgun á lundapysjum stendur sem hæst. Vísir/Vilhelm Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til þeirra sem standa nú að björgun á lundapysjunni að fara varlega og leggja leið sína að svokölluðu sleppisvæði og standa þar fyrir innan hlaðna veggi. Þeim hafi borist í það minnsta tvær tilkynningar um að fólk hafi staðið fyrir utan veggina og litlu munað að illa færi. Kemur þetta fram í færslu embættisins á Facebook en þar er vakin athygli á sleppisvæði sem er við Ofanleitishamar. Þangað leggi leið sína fjöldi fólks nú þegar björgun á lundapysjum standi sem hæst en oftar en ekki séu heilu fjölskyldurnar saman í verkefninu. „Höfum fengið ábendingu um að staðið sé fyrir utan hlaðna vegginn og litlu hafi mátt muna í a.m.k. tveimur tilfellum að illa færi. Þar hafi verið á ferð börn sem hafi misst frá sér pysju og reynt að ná henni aftur en verið komin í hættu þar sem þau voru nálægt hárri bjargsbrúninni,“ segir í færslunni. Sleppisvæðið er við Ofanleitishamar í Vestmannaeyjum.Facebook Björgunarfólk eigi að standa fyrir aftan vegginn þegar sleppt sé því pysjubjörgun geti skapað skemmtilegar og góðar minningar fyrir fjölskylduna og forsenda þess sé að allir komi heilir heim. Færsluna má lesa hér að neðan í heild sinni.
Kemur þetta fram í færslu embættisins á Facebook en þar er vakin athygli á sleppisvæði sem er við Ofanleitishamar. Þangað leggi leið sína fjöldi fólks nú þegar björgun á lundapysjum standi sem hæst en oftar en ekki séu heilu fjölskyldurnar saman í verkefninu. „Höfum fengið ábendingu um að staðið sé fyrir utan hlaðna vegginn og litlu hafi mátt muna í a.m.k. tveimur tilfellum að illa færi. Þar hafi verið á ferð börn sem hafi misst frá sér pysju og reynt að ná henni aftur en verið komin í hættu þar sem þau voru nálægt hárri bjargsbrúninni,“ segir í færslunni. Sleppisvæðið er við Ofanleitishamar í Vestmannaeyjum.Facebook Björgunarfólk eigi að standa fyrir aftan vegginn þegar sleppt sé því pysjubjörgun geti skapað skemmtilegar og góðar minningar fyrir fjölskylduna og forsenda þess sé að allir komi heilir heim. Færsluna má lesa hér að neðan í heild sinni. Kæra pysjubjörgunarfólk Nú stendur sem hæst björgun á lundapysjum og eru margir kappsamir við þá iðju og biðlum því til ykkur að fara að öllu með gát. Viljum þó sérstaklega vekja athygli ykkar á sleppisvæðinu við Ofanleitishamar en þangað leggur leið sína fjöldinn allur af fólki til þess að sleppa pysjum. Höfum fengið ábendingu að staðið sé fyrir utan hlaðna vegginn og litlu hafi mátt muna í a.m.k. tveimur tilfellum að illa færi. Þar hafi verið á ferð börn sem hafi misst frá sér pysju og reynt að ná henni aftur en verið komin í hættu þar sem þau voru nálægt hárri bjargsbrúninni. Viljum við benda björgunarfólki á að standa fyrir aftan vegginn þegar sleppt er því pysjubjörgun skapar skemmtilegar og góðar minningar fyrir fjölskylduna og forsenda þess er að allir komi heilir heim.
Kæra pysjubjörgunarfólk Nú stendur sem hæst björgun á lundapysjum og eru margir kappsamir við þá iðju og biðlum því til ykkur að fara að öllu með gát. Viljum þó sérstaklega vekja athygli ykkar á sleppisvæðinu við Ofanleitishamar en þangað leggur leið sína fjöldinn allur af fólki til þess að sleppa pysjum. Höfum fengið ábendingu að staðið sé fyrir utan hlaðna vegginn og litlu hafi mátt muna í a.m.k. tveimur tilfellum að illa færi. Þar hafi verið á ferð börn sem hafi misst frá sér pysju og reynt að ná henni aftur en verið komin í hættu þar sem þau voru nálægt hárri bjargsbrúninni. Viljum við benda björgunarfólki á að standa fyrir aftan vegginn þegar sleppt er því pysjubjörgun skapar skemmtilegar og góðar minningar fyrir fjölskylduna og forsenda þess er að allir komi heilir heim.
Vestmannaeyjar Dýr Fuglar Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira