Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 15:33 32 borgarstarfsmenn munu fá boð um ný eða breytt störf hjá borginni en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. Vísir/Vilhelm Skipulagsbreytingar Reykjavíkurborgar leiða til uppsagna 86 starfsmanna borgarinnar. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. Þeirra á meðal eru 22 stöðugildi sem lögð verða niður.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en greint var frá því í morgun að tugum borgarstarfsmanna hefði verið sagt upp vegna skipulagsbreytinga. Þeirra á meðal séu 22 stöðugildi sem verði lögð niður þegar samningur borgarinnar við ríkið vegna samræmdrar móttöku flóttamanna renni út um áramót. Borgarráð hafi í dag samþykkt tillögu borgarstjóra um umfangsmiklar breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs og muni ný skipurit taka gildi þann 1. september 2026. Borgarráð fundar venjulega á fimmtudögum en ráðið fundaði aukalega í morgun. Breytingarnar feli í sér nýtt þjónustu- og stjórnskipulag á velferðarsviði og skóla-og frístundasviði. Þar verði stjórnskipulag einfaldað, stjórnendum fækkað og þjónusta í auknum mæli skipulögð eftir faggreinum. Stjórnendum og millistjórnendum var fækkað en framlínustörf voru varin, segir í tilkynningu. Með hinu nýja skipulagi verði áfram lögð megináhersla á nærþjónustu við íbúa í hverfum, skóla og frístundastarf. Verkefni og þjónusta miðstöðvanna, frístundamiðstöðvanna, Keðjunnar og Virknihúss verði færð inn í nýtt skipulag sem byggi á þjónustuþörfum íbúa, faglegri sérhæfingu og samræmdri þjónustu þvert á borgina í stað hverfaskiptingar. Þjónusta á miðstöðvunum verði veitt með óbreyttu fyrirkomulagi eftir því sem innleiðingu breytinganna vindur fram, þó eigi lengur en til ársloka 2026. Áætlað sé að breytingarnar skili um 900 milljóna króna hagræðingu á ársgrundvelli þegar þær hafa að fullu komið til framkvæmda. Áhrifa muni gæta af fækkun stöðugilda, breytingum á stjórnskipulagi og lægri húsnæðiskostnaði. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vinnumarkaður Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira