Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar 26. ágúst 2026 13:32 Öll þekkjum við sögur af íslenskum bændum. Þrautseigir, dugmiklir og vinnusamir einstaklingar sem hafa þrjóskast við það að framleiða heilnæm matvæli hvort sem það er í jörðu, gróðurhúsum, fjósum, fjárhúsum eða búfjárhúsum. Þessir bændur hafa lagt allt sitt undir til þess að tryggja að hér séu í boði hollar landbúnaðarvörur allan ársins hring. Þetta hafa þeir gert vel, nytin eftir kúnna er sífellt að aukast, kílóin eftir ána sömuleiðis og nútímavæðing í íslenskum gróðurhúsum mun bæta rekstrarskilyrði og vonandi skila framleiðniaukningu þeirra sömuleiðis. En til þess að hægt sé að gera þessa hluti verða bændur að geta gert áætlanir til einhverra ára. Það að taka ákvörðun um það hvort það eigi að byggja nýtt fjós, nýtt gróðurhús eða kaupa annan mjaltaþjón, ég segi annan mjaltaþjón því íslenskir bændur eru í fremstu röð þegar það kemur að róbotavæðingu fjósa sem gæti verið ástæða þess að bændur séu að vinna lengur út starfsævina en áður þar sem vinnan hefur tekið miklum stakkaskiptum. Allt veltur þetta á því að þú getir áætlað tekjur fyrir þínar afurðir. Þú leggur ekki heimili þitt og fjölskyldunnar þinnar undir ef óvissa um framtíðina er meiri en hún þarf að vera. Margra ára samningaviðræður við 27 aðildarríki ESB um það að við njótum svo mikillar sérstöðu að við eigum að fá að standa fyrir utan regluverk ESB í landbúnaðarmálum eða að við eigum skilið að fá greitt töluvert meira fyrir hvern framleiddann mjólkurlíter vegna aðstæðana hér á landi en bændur þeirra eigin ríkja, þetta skapar óvissu fyrir bændur á Íslandi. Það er staðreynd að enginn hefur fengið undanþágu frá sameiginlegu landbúnaðarstefnunni en vissulega hafa verið veittar sérlausnir innan hennar sem hafa skilað takmörkuðum árangri fyrir þá sem hafa fengið slíkt. Það er þessi óvissa sem íslenskir bændur standa frammi fyrir þegar talað er um að hefja aðildarferli að Evrópusambandinu án þess að fyrir liggi skýr niðurstaða um hvernig íslenskum landbúnaði verði búið innan sambandsins. Það er ekki nóg að segja að um þetta verði samið. Á meðan á aðildarferlinu stendur er það bóndinn sem á að taka áhættuna og tryggja að á Íslandi sé nóg til af matvælum fyrir íslenska þjóð. Þetta mun ekki gerast með látum. Bændur hætta að fjárfesta. Börn bænda ákveða að taka ekki við. Húsakostur grotnar niður, frestað verður að endurnýja tæki og vélar, ný fjós, fjárhús og gróðurhús hætta að rísa. Mesta raunverulega hættan er ekki að bændum verði skipað að hætta búskap heldur að yngri kynslóðir ákveði sjálfar að byrja aldrei. Niðurstaðan liggur ekki fyrir en óvissan hún kemur strax 30. ágúst ef viðræður verða teknar upp að nýju. Þannig munu sveitirnar þagna. Segjum NEI 29. ágúst og eyðum óvissunni strax. Höfundur er starfsmaður á kúabúi, sveitarstjórnarmaður í landbúnaðar sveitarfélagi (Flóahreppi) og 5 barna faðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar