Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. ágúst 2026 11:55 Hildur segir Samhjálp heldur verða boðin aðstaða í mötuneyti ráðhússins en að rof verði á þjónustunni. Reykjavíkurborg hefur sent forsvarsmönnum Samhjálpar tillögur að tveimur mögulegum staðsetningum fyrir Kaffistofu samtakanna. Ráðast þarf í deiliskipulag en borgarstjóri segir allt verða gert til að forðast þjónusturof. „
Við fólum starfsfólki Reykjavíkurborgar í sumar að leita að heppilegri staðsetningu fyrir starfsemi Samhjálpar í borginni, með það fyrir augum að finna bæði stað sem hentaði og húsnæði,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. „Og í morgun sendum við þeim tillögur að tveimur staðsetningum; annarri úti á Granda og hinni nokkuð nálægt núverandi stað. Þetta er í báðum tilfellum húsnæði í eigu Reykjavíkurborgar, þar sem við ættum að geta boðið þeim hagstæða leigu.“ Hildur segist vilja gefa Samhjálp tíma til að leggjast yfir hugmyndirnar áður en hún uppljóstrar um það hvað húsnæði er um að ræða en ítrekar að það ætti að henta starfseminni vel. Fá frekar inni í mötuneyti ráðhússins en að lenda á götunni Greint var frá því í júní síðastliðnum að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefði fellt úr gildi ákvörðun byggingafulltrúans í Reykjavík um að heimila rekstur Kaffistofunar í húsnæði við Grensásveg. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að gera hefði þurft nýtt deiliskipulag á reitnum vegna mögulegra grenndaráhrifa. Fyrirhugaður rekstur við Grensásveg var afar umdeildur meðal íbúa en spurð að því hvort hún telji meiri sátt munu nást um starfsemina á þeim stöðum sem nú eru til umræðu svarar Hildur játandi. „Upplifun okkar af umræðunni var svolítið sú að sama hvar starfseminni yrði komið fyrir yrði það alltaf umdeilt,“ segir hún. „En ef Samhjálp tekur öðru hvoru tilboðinu og við förum af stað í deiliskipulagsvinnu þá auðvitað gefst íbúum og atvinnurekendum í nærumhverfinu tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum að,“ segir hún. Deiliskipulagið muni taka nokkrar vikur en vonandi fái Samhjálp áfram inni hjá Fíladelfíu í millitíðinni. „Ef það verður eitthvað þjónusturof í einhverjar örfáar vikur þá munum við leita allra leiða til að leysa það. Ef allt annað bregst myndum við frekar bjóða þeim að vera hér í mötuneyti ráðhússins en að láta þau lenda á götunni,“ segir borgarstjóri.
Reykjavík Kaffistofa Samhjálpar Borgarstjórn Málefni heimilislausra Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira