Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar 28. ágúst 2026 07:32 Ég, líkt og margir ungir Íslendingar á í góðu sambandi við ömmu mína og afa. Raunar er samband okkar það gott að ég fékk að búa hjá þeim þegar ég var að taka mín fyrstu skref á fullorðins árunum. Ég ólst upp við það að amma og afi sýndu mér hversu fallegt landið okkar væri og þau kenndu mér að vera stoltur af því hvaðan ég kæmi, að vera stoltur af því að vera Íslendingur. Þau sögðu mér líka sögur af því hvernig hlutirnir voru þegar þau voru að alast upp, á árunum eftir lýðveldisstofnun og hversu mikið samfélagið hefur breyst síðan þá, hversu gott ég hefði það og hversu heppinn ég væri að hafa ekki þurft að kynnast því. Já lífið var ekki alltaf auðvelt hér á eyjunni okkar fögru, en það sem hefur þó einkennt okkar lýðveldissögu er að við höfum aldrei gefist upp. Þessi séríslenska þrautsegja hefur gert það að verkum að okkur hefur tekist að fara úr því að vera ein fátækasta þjóð Evrópu yfir í það að vera eitt mesta velmegunarsamfélag á jarðríki. Okkur hefur tekist að byggja hér upp land sem lætur aðrar þjóðir horfa til okkar af öfund. Þetta tókst okkur, litla Íslandi, að gera með ákvörðunum sem voru teknar hér heimafyrir, ákvarðanir sem voru teknar af Íslendingum, fyrir Íslendinga. Þetta var einungis hægt vegna þeirra réttinda sem kynslóðirnar sem á undan komu börðust fyrir að fá, frelsinu til að fá að ráða okkur sjálf. Síðan tók næsta kynslóð við keflinu, byggði ofan á það sem vel var gert, en endurtók ekki mistökin sem gerð voru, heldur lærði af þeim. Svona hefur þetta gengið kynslóð eftir kynslóð og við hver kynslóðar skipti hefur fylgt framþróun fyrir fólkið í landinu. Nú fer að koma að því að mín kynslóð taki við keflinu af kynslóðinni á undan og fái þá frelsið til þess að leggja sitt mark á Íslandssöguna, með því að byggja á því sem vel er gert, en bæta það sem við teljum að betur mætti fara. En nú hamast öfl við að koma í veg fyrir að þessi kynslóðaskipti muni eiga sér stað, þess í stað eigi að rétta keflið til Brussel og að mín kynslóð eigi aldrei að fá að komast að og engin kynslóð sem á eftir henni kemur heldur. Það sem verra er, er að þessi öfl hafa sett gífurlegt púður í það að segja eldra fólki í landinu að þetta sé eitthvað sem við viljum sjálf. Það er verið að telja ömmum okkar og öfum trú um það að við höfum bara engan áhuga á því að taka við landinu sem þau byggðu upp fyrir okkur. Þeim er talin trú um það að við treystum frekar einhverjum embættismönnum í 2.000km fjarlægð, heldur en okkur sjálfum, til þess að taka ákvarðanir fyrir okkur. Þessi herferð leggur orð í munn mér og minnar kynslóðar, þar sem ég er bara alls ekki þessarar skoðunar, ekkert frekar en bara flest ungt fólk sem ég þekki. Flest ungt fólk trúir því að við Íslendingar séum betur til þess fallnir að taka ákvarðanir um hagsmuni okkar Íslendinga heldur en einhverjir embættismenn í Brussel. Okkur langar að fá tækifærið til þess að leggja okkar mark á okkar frábæra samfélag og skila því síðan til kynslóðanna sem á eftir koma, í betra ástandi en við tókum við því og halda því áfram þessari framþróunarkeðju sem hefur einkennt Íslenska lýðveldissögu. Þetta staðfesti þjóðarpúls Gallup sem birtur var í gær, þar sem fram kom að 60% meirihluti fólks undir 30 ára ætli að kjósa nei.Ég biðla því til allra amma og afa landsins að treysta barnabörnunum ykkar frekar en framandi mönnum í Brussel og að veita þeim tækifærin til þess að gera íslenskt samfélag betra á morgun en það er í dag, líkt og þið fenguð tækifæri til, sem skilaði okkur einu mesta velmegunarsamfélagi sem fyrir finnst. Kæru amma og afi, ekki kjósa fyrir okkur með því að kjósa gegn okkur.Setið frekar X við nei og treystið okkur fyrir eigin framtíð, sem þið getið verið stolt af. Höfundur er fjármálaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar