Körfubolti

Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ade Murkey lék með Álftanesi á síðasta tímabili. 
Ade Murkey lék með Álftanesi á síðasta tímabili.  Vísir / Diego

Tindastóll hefur samið við bandaríska bakvörðinn Ade Murkey fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla í körfubolta. Hann kemur inn í leikmannahópinn í stað Jalen Adaway sem hafði samið við Tindastól en mun ekki koma hingað til lands.

Adaway „lenti í veseni með vegabréfið“ og Tindastóll „missti þolinmæðina,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, í samtali við Vísi. Adaway vakti athygli þegar hann samdi við Tindastól en hann hafði áður verið rekinn úr G-deild NBA fyrir að falla á lyfjaprófi.

Tindastóll ákvað því að semja við Ade Murkay, sem er áhorfendum Bónus deildarinnar vel kunnugur en hann spilaði með Álftanesi á síðasta tímabili. Murkey var með 23.3 stig, 7.7 fráköst og 2.9 stoðsendingar að meðaltali í 14 leikjum fyrir Álftanes.

„Murkey er öflugur bakvörður/vængmaður sem kemur með mikla reynslu úr atvinnumennsku, meðal annars úr NBA G-deildinni, þar sem hann hefur leikið með liðum á borð við Iowa Wolves, Stockton Kings og Wisconsin Herd. Hann á einnig að baki leik með Sacramento Kings í NBA-deildinni og verður þar af leiðandi annar leikmaður í sögu Tindastóls sem á leik í NBA. Hinn leikmaðurinn var Pétur Guðmundsson, sem kom til Tindastóls árið 1990 frá Bandaríkjunum.

Murkey er 196 cm hár leikmaður, fæddur árið 1998 í Minneapolis í Bandaríkjunum, og lék háskólakörfubolta með Denver Pioneers. Hann hefur á ferlinum sýnt styrk sinn sem fjölhæfur leikmaður sem getur skorað, skapað fyrir aðra og lagt mikið til varnarlega,“ segir í tilkynningu Tindastóls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×