Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar 28. ágúst 2026 09:31 Halldór Benjamín Þorbergsson fræddi okkur á RÚV á fimmtudagskvöldið um að af um tvö þúsund gerðum Evrópusambandsins rötuðu um fjögur hundruð inn í EES-samninginn. Það eru tuttugu prósent. Af því dró hann þá ályktun að Ísland hefði tekið upp um fimmtung af sameiginlegu regluverki sambandsins. Reikningsdæmið má vel vera rétt. Það er aðferðin sem er sérkennileg. Þrjár línur í Excel Aðferðin gengur út á að hver gerð sé jafngild annarri. Ein er ein. Framkvæmdastjórn ESB sendir frá sér reglugerð sem skráir tiltekna sveitapylsu frá héraði á Norður-Ítalíu í skrá yfir verndaðar upprunamerkingar. Ein blaðsíða. Hún kemur Íslandi ekki við, kom Íslandi ekki við í gær og mun ekki koma Íslandi við á næstu öld. Ein gerð. Daginn eftir kemur reglugerð um viðmiðunarverð á innfluttum mandarínum, sem gildir þar til næsta reglugerð um mandarínur tekur við. Ein gerð. Svo kemur regluverkið um bankana. Eiginfjárkröfur, lausafjárkröfur, áhættustýring, eftirlit og upplýsingaskylda. Hundruð blaðsíðna sem ráða því hvernig bankar landsins eru reknir frá morgni til kvölds. Ein gerð. Í talningunni eru þetta þrjár línur. Þrjú stykki. Fullkomið jafnræði á milli pylsna, mandarína og bankakerfis. Það má telja svona. Það má líka telja tóma skyrdós og frystitogara og komast að þeirri niðurstöðu að þar fljóti tvennt. Norðmenn nenntu að mæla Sérfræðinganefnd undir forystu Fredriks Sejersted vann í rúm tvö ár og skilaði árið 2012 úttekt upp á um þúsund blaðsíður. Nefndin taldi ekki skjöl, hún mat efnislegt umfang. Niðurstaðan var sú að Noregur væri þegar tengdur um þremur fjórðu hlutum þess samstarfs og regluverks sem aðildarríki býr við. Fyrir þá sem telja það úrelt: Eldring-nefndin skilaði nýrri úttekt í apríl 2024 og staðfesti að samstarfið hefði haldið áfram að vaxa síðan. Ísland og Noregur eru bæði í EES og Schengen. Þetta er því rétta viðmiðið, ekki fjögur hundruð deilt með tvö þúsund. Og það þarf ekki sérfræðinefnd til að sjá þetta. Fjórfrelsið, samkeppnisreglur, bankareglur, opinber innkaup, félagaréttur, vinnumarkaður, persónuvernd, neytendavernd, flug, fjarskipti og stór hluti umhverfisreglna o.fl. Þetta eru ekki pylsur og mandarínur sem gufa upp á fimmtudaginn. Sjávarútvegur og landbúnaður standa vissulega utan EES, en allt sem unnið er úr íslenskum fiski, lambi og mjólk fer eftir evrópsku regluverki. Það er ekki valkvætt. Við erum sem sagt komin rúmlega 75% inn í regluverk ESB. Án atkvæðisréttar. Og kvörtum svo yfir því að reglurnar taki ekki nægilegt tillit til íslenskra aðstæðna. Það er alveg rétt hjá okkur. Þær gera það stundum ekki. Það er hins vegar erfitt að hafa áhrif á gang leiksins úr sófanum. Hvað skildum við eftir? Meðal annars gjaldmiðilinn. Við tókum bankareglurnar. Við tókum samkeppnisreglurnar. Við tókum persónuverndina. Við tókum vinnumarkaðinn. En evruna, þann eina þátt sem venjulegt fólk finnur fyrir á greiðsluseðlinum um hver mánaðamót, hana létum við eiga sig. Hún féll hinum megin við línuna sem dregin var í sandinn. Krónan til 2060 Norðmenn sögðu nei við aðildarsamning árið 1972. Þeir sögðu nei aftur árið 1994. Á milli liðu 22 ár. Síðan eru liðin 32 ár og enn er ekki pólitískur vilji til að vekja málið upp á ný. Ef íslenskir stjórnmálamenn setja málið á ís jafn lengi og Norðmenn þá verður næst spurt um þetta árið 2058. Þá tekur við samningaferli, fullgilding í 27 ríkjum og að lágmarki tvö ár í biðsal evrunnar, ERM II, áður en skipt yrði um gjaldmiðil. Nei á laugardaginn þýðir því, í hreinu reikningsdæmi, að Íslendingar eiga þess ekki kost að taka upp evru fyrr en í fyrsta lagi um 2060. Kornabörn verða þá komin á fertugsaldur og krónan enn í fullu fjöri, jafn smá, sveiflukennd og dýr og hún hefur alltaf verið. Þetta er auðvitað ekki nákvæm spá. En hún er nær lagi en tuttugu prósentin. Vélin stöðvast ekki við nei Gerðirnar halda áfram að berast, - og pylsurnar líka. Nei færir okkur ekki út úr þessum 75 prósentum. Það lokar aðeins á að við fáum að vita hvað felst í þeim 25% sem út af standa. Á laugardaginn er ekki kosið um aðild. Það er kosið um hvort við megum sjá samninginn áður en við tökum afstöðu til hans. Hún snýst um hvort Ísland standi í stað þegar kemur að alþjóðasamvinnu við vinaþjóðir okkar, - eða hvort Ísland fari Áfram. Ég vil vita allar upplýsingar og þess vegna ætla ég að segja já á laugardaginn. Höfundur er viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í samtökunum Sjá. Heimildir NOU 2012:2, Utenfor og innenfor. Norges avtaler med EU (Europautredningen, Sejersted-nefndin), Utenriksdepartementet, Ósló 2012. https://www.regjeringen.no/contentassets/5d3982d042a2472eb1b20639cd8b2341/no/pdfs/nou201220120002000dddpdfs.pdf NRK, „Norge er tre fjerdedels EU-medlem", 2012, um niðurstöðu Sejersted-nefndarinnar um þrjá fjórðu hluta. https://www.nrk.no/norge/norge-er-tre-fjerdedels-eu-medlem-1.7956972 Store norske leksikon, „Sejersted-utvalget, Europautredningen". https://snl.no/Sejersted-utvalget_-_Europautredningen NOU 2024:7, Norge og EØS: Utvikling og erfaringer (Eldring-nefndin), skilað 11. apríl 2024. Yfirlit Stórþingsins: https://www.stortinget.no/no/Hva-skjer-pa-Stortinget/EU-EOS-informasjon/EU-EOS-nytt/2024/eueos-nytt---16.-april-2024/nou-2024-7-norge-og-eos-utvikling-og-erfaringer/ Reglugerð (ESB) nr. 575/2013 og tilskipun 2013/36/ESB um eiginfjárkröfur og starfsemi lánastofnana (CRR/CRD IV), teknar upp í EES-samninginn. eAmbrosia, skrá ESB yfir verndaðar upprunamerkingar landbúnaðarafurða og matvæla. Sáttmáli um starfshætti Evrópusambandsins, 140. gr., og samleitnisviðmið Seðlabanka Evrópu um að minnsta kosti tveggja ára þátttöku í ERM II. Þjóðaratkvæðagreiðslur Noregs um aðild að ESB/EB, 25. september 1972 og 28. nóvember 1994. Stjórnarráð Íslands, upplýsingasíða um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 2026. https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/evropusamvinna/thjodaratkvaedagreidsla/ Ummæli Halldórs Benjamíns Þorbergssonar í umræðuþætti RÚV um þjóðaratkvæðagreiðsluna 27. ágúst 2026.https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-ja-eda-nei-badar-hlidar-gera-grein-fyrir-mali-sinu-485079 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar