Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Árni Sæberg og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 28. ágúst 2026 12:19 Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm Eftir verðbólgutíðindi gærdagsins er ljóst að forsendur kjarasamninga eru brostnar og heimild til að segja þeim upp virkjast 1. september. Fjármála- og efnahagsráðherra segir stjórnvöld hafa unnið að því síðan í vor, ásamt aðilum vinnumarkaðarins, að reyna að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið verði nýtt. Nú sé mjög stutt í að aðgerðir verði kynntar. „
Við höfum auðvitað verið að vinna með aðilum vinnumarkaðarins frá því mjög snemma í vor af því að það var alltaf ákveðin hætta á að þetta færi með þessum hætti. Við erum núna mjög nálægt því að vera komin með drög að einhverju sameiginlegu. Ég er mjög bjartsýnn á að það geti gengið í gegn og sú vinna heldur áfram,“ sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi, inntur eftir því hvernig ríkisstjórnin ætli að bregðast við stöðunni sem nú er komin upp á vinnumarkaði. Formaður Starfsgreinasambandsin sagði í gær að það væri mjög mikilvægt að allir aðilar vinnumarkaðar og stjórnvöld settust niður og ynnu að lausn og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins kallaði eftir þjóðarsátt. Unnið í eins miklu samráði og hægt er Skilja mátti á þeim að þeim þætti skorta á frumkvæði stjórnvalda og meira samtal við stjórnvöld. Daði Már kveðst ekki kannast við það. „Við höfum átt þetta samráð við Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins. Við höfum auðvitað verið í öðrum samtölum á sama tíma en vinnan hefur verið þar. Við höfum líka kynnt niðurstöðu þeirrar vinnu í þjóðhagsráði þar sem mjög margir aðilar koma að, fleiri stéttarfélög sem og sveitarfélögin. Þannig að þetta hefur verið unnið í eins miklu samráði og mögulegt er.“ Þú segir að þið séuð að fara að koma með einhvers konar aðgerðapakka. Hvenær nákvæmlega? „Þetta er auðvitað samtal. Við erum auðvitað ekki beinir aðilar að kjarasamningunum en höfum sýnt alveg skýran vilja til þess að styðja við að þeir eða forsendur þeirra geti haldið. Það er raunverulega veltur svolítið á aðilum vinnumarkaðarins hvenær þetta verður kynnt en við munum taka þátt í þeirri vinnu.“ Hið opinbera leiði ekki hækkanir Borið hefur á því að stjórnvöld séu gagnrýnd fyrir gjaldskrárhækkanir og þeim hefur jafnvel verið kennt um aukningu verðbólgu. Daði Már blæs á slíka gagnrýni. „Ég vil byrja á því að halda því til haga að gögnin styðja nú ekki að það hafi verið hækkanir opinberra gjalda sem leiða þetta og raunar er það þannig að þau hafa verið algjörlega hlutlaus varðandi verðbólguþróun. En ég tel samt að það sé mjög mikilvægt að allir aðilar axli ábyrgð. Forseti ASÍ hefur ítrekað sagt þetta og ég tek undir með honum að þetta er verkefni sem krefst óvenjulegrar aðkomu og við erum tilbúin í hana.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Vinnumarkaður Atvinnurekendur Verðlag Kjaramál Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira