Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar 28. ágúst 2026 12:11 Árið 1998 skrifaði ég meistararitgerð við Georgetown-háskóla í Washington, D.C., um ferð Íslands út í heim. Óvenjulegur ferðafélagi minn var Gúllíver, aðalpersónan í Ferðum Gúllívers eftir Jonathan Swift. Í Lilliput vaknar Gúllíver sem risi meðal örsmárra íbúa. Með skipulagi og samvinnu tekst þeim að binda risann niður. Síðar kemur hann til Brobdingnag og hlutverkin snúast við. Þar er Gúllíver sjálfur örsmár meðal risa. Stærð Gúllivers hefur ekki breyst, aðeins mælikvarðinn. Þekking hans, reynsla og hæfileikar eru þeir sömu. Aðeins umhverfið og sjónarhornið eru önnur. Tæpum þrjátíu árum síðar finnst mér þessi líking eiga brýnt erindi við Íslendinga. Swift sýndi líka með beittri kímni hversu smásmuguleg stjórnmál geta orðið. Lilliputbúar deila af mikilli alvöru um hvorn endann á soðnu eggi eigi að brjóta. Með þessari fáránlegu deilu gerir Swift grín að stjórnmálum þar sem fylkingar og slagorð verða mikilvægari en málefnin sjálf. Við Íslendingar erum fá en ekki áhrifalaus. Smæð okkar getur verið styrkur, en aðeins ef við höfum sjálfstraust til að sækja út í heim, byggja upp þekkingu og vinna með öðrum. Ég þekki evrópskt samstarf ekki af afspurn. Ég hef búið tólf ár erlendis, þar af átta ár við nám, en mig langaði alltaf heim til að nýta reynsluna og gera gagn. Ég hef starfað að menntun, menningu og nýsköpun í evrópsku samstarfi, meðal annars fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Ég þekki því bæði styrkleika kerfisins og veikleika. Það getur verið flókið, hægt og stundum óþarflega þungt. En ég veit líka hversu mikils metið framlag Íslendinga er. Íslendingar eru ekki ósýnilegir í evrópsku samstarfi. Ég hef séð af eigin raun að það er hlustað á okkur þegar við komum vel undirbúin og höfum eitthvað fram að færa. Áhrif ráðast ekki aðeins af höfðatölu. Þau ráðast af þekkingu, trúverðugleika og því að vera í herberginu þegar ákvarðanir eru mótaðar. Sá sem stendur fyrir utan getur haft sterkar skoðanir en fær sjaldnast að halda á pennanum. Við heyrum oft að til þess að ráða okkur sjálf verðum við að halda okkur til hlés. Ég sé þetta öðruvísi. Að ráða sér sjálf felst ekki í því að forðast valkosti heldur að skapa þá. Það felst í að hafa kjark til að kanna leiðir, semja af festu og taka síðan upplýsta ákvörðun um framtíðina. Fullveldi er ekki stofustáss sem varðveita á ósnert í glerskáp. Það er verkfæri sem við notum til að gæta hagsmuna þjóðarinnar í síbreytilegum heimi. Heimurinn bíður ekki eftir okkur. Ákvarðanir um gervigreind, loftslagsmál, orku, stafrænt öryggi, viðskipti og menntun verða teknar hvort sem við tökum þátt í þeim eða ekki. EES-samningurinn tryggir okkur mikilvægan markaðsaðgang en ekki sama sæti við borðið þegar reglurnar eru mótaðar. Ungt fólk þarf ekki að láta segja sér að heimurinn sé alþjóðlegur. Það lifir nú þegar í heimi þar sem landamæri stöðva hvorki hugmyndir, tækni né áskoranir. Spurningin er hvort það fái aðeins að fylgja breytingunum eða einnig að móta þær. Evrópusamstarfið spratt úr rústum styrjalda og hugrekki leiðtoga sem völdu samvinnu fram yfir sundrung. Þeir voru ekki að gefa þjóðir sínar upp á bátinn heldur að tryggja þeim frið, öryggi og framtíð. Raunveruleg forysta felst ekki aðeins í að verja það sem fyrir er. Hún felst líka í að átta sig á því þegar gamlar lausnir duga ekki lengur og treysta þjóðinni fyrir nýjum valkostum. Að setjast að samningaborðinu er ekki að skrifa undir óútfylltan samning. Það er að leggja fram kröfur okkar, berjast fyrir hagsmunum okkar og meta niðurstöðuna. Ef hún er ekki nógu góð getum við hafnað henni. En án viðræðna fáum við engan niðurstöðu til að meta. Mér finnst það ekki merki um sjálfstæði að segja nei áður en við vitum hvað okkur stendur til boða. Meira sjálfstraust felst í því að þora að ganga að borðinu. Gúllíver komst ekki að því hver hann var með því að halda kyrru fyrir heima. Ferðirnar neyddu hann til að endurmeta stöðu sína og víkkuðu sjónarhorn hans. Stundum var hann risinn og stundum sá minnsti í herberginu. En hver ferð víkkaði sjónarhorn hans. Við erum lítil þjóð en þurfum ekki að hugsa smátt. Við höldum áfram að ráða okkur sjálf með því að hafa kjark til að kanna möguleikana og ákveða framtíð okkar á grundvelli þekkingar en ekki ótta. Sjálfstæði felst ekki í því að sigla ein. Það felst í því að halda sjálf um stýrið. Þess vegna kýs ég JÁ, 29. ágúst. Höfundur er sérfræðingur í Evrópumálum og eigandi NORTH Consulting ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar