„Þeir munu hengja mig“ Samúel Karl Ólason skrifar 31. ágúst 2026 11:30 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill frekar reyna að gefa enn frekar í en að binda enda á stríðið gegn Úkraínu. Hann mun óttast viðbrögð auðjöfra í Rússlandi við því að binda enda á stríðið án þess að Rússar nái tökum á Donbas-svæðinu. AP/Vyacheslav Prokofyev, Sputnik Vladimír Pútín óttast það að binda enda á stríðið gegn Úkraínu án þess að ná fullum tökum á Donbas-svæðinu svokallaða. Hann er sagður telja að hann yrði ráðinn af dögum ef hann gerði það og þess í stað ætlar hann að leggja enn meira í stríðsreksturinn. „
Þeir munu hengja mig,“ er Pútín sagður hafa sagt við sína nánustu ráðgjafa, samkvæmt heimildum Economist. Sókn Rússa í Úkraínu hefur gengið mjög hægt á undanförnum mánuðum en hún hefur gengið og þá sérstaklega í Dónetsk-héraði. Það hérað, ásamt Lúhansk sem Rússar stjórna að fullu, myndar Donbas-svæðið svokallaða. Úkraínumenn stjórna enn hluta Dónetsk en það svæði þykir mjög víggirt. Þar eru nokkrar borgir og bæir sem Úkraínumenn hafa byggt upp miklar varnir í í gegnum árin og er svæðið kallað „virkisbeltið“. Þá hafa bæði Úkraínumenn og Rússar bætt miklu púðri í árásir á innviði og önnur skotmörk djúpt í löndunum tveimur, með því markmiði að valda sem mestum efnahagslegum skaða. Heimildarmenn Economist segja að Pútín hafi á undanförnum vikum velt stöðunni varðandi innrásina verulega fyrir sér. Í stað þess að reyna að binda enda á stríðið er hann sagður hafa tekið þá ákvörðun að bæta í. Forsetinn er sagður ætla að reyna að senda þrjú til fjögur hundruð þúsund hermenn til viðbótar á víglínuna. Herkvaðningin sem Pútín boðaði árið 2022 er tæknilega séð enn í gildi og stendur til að nota hana til að finna nýja hermenn. Úkraínumenn hafa um nokkuð skeið haft áhyggjur vegna ummerkja þess að Rússar ætluðu sér að framkvæma nýja herkvaðningu. John Ratcliffe, yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), ferðaðist til Moskvu í mánuðinum, þar sem hann mun hafa varað ráðamenn í Rússlandi við því að hella olíu á eldinn hvað varðar Úkraínu. Ratcliffe er sagður hafa lagt til við Rússa að þeir kæmu að viðræðum af alvöru. Sjá einnig: Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Economist hefur eftir ráðgjafa Pútíns til langs tíma að forsetinn sé líklegur til að hafa talið heimsóknina til marks um veikleika í Bandaríkjunum. Það hafi hann gert í lok árs 2021, þegar Bill Burns, fyrrverandi yfirmaður CIA, fór til Moskvu og varaði Rússa við því að ráðast inn í Úkraínu. Þremur mánuðum síðar hófu Rússar innrásina. Pirraðir auðjöfrar Einn heimildarmaður miðilsins segir að meðal rússneskra auðjöfra sé mikil beiskja vegna stríðsrekstursins. Efnahagur Rússlands hefur orðið fyrir miklum skaða og árangurinn hefur verið slæmur. Auðjöfrum þykir þetta hafa staðið yfir of lengi. Annar sagði sífellt fleiri auðjöfra sjá það að „keisarinn sé nakinn“. Forsetinn leggur þó mikla áherslu á það að sýna ekki veikleikamerki. Nokkrir heimildarmenn Economist sögðu Pútín telja að ef hann myndi binda enda á stríðið án þess að tryggja yfirráð Rússlands yfir Donbas-svæðinu, yrði hann ráðinn af dögum. Pútín hefur sagt nokkrum af sínum nánustu ráðgjöfum að hann yrði hengdur. Um helgina líkti Pútín stríðinu í Úkraínu við fæðukeðjuna og nefndi að háhyrningar ætu Hvítabirni. Það þyrfti að kenna börnum, svo þau lærðu hvernig heimurinn virkaði. Putin compared the war against Ukraine to a food chain, with orcas tearing apart polar bears. He said children should be taught this to understand "the world we live in." pic.twitter.com/K0g4oeYGfP— WarTranslated (@wartranslated) August 29, 2026 Ekki er vitað til þess að háhyrningur hafi nokkurn tímann étið hvítabjörn.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Tengdar fréttir Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Úkraínsk stjórnvöld telja sig hafa njósnir um að Rússar hyggi á nýja sókn á landi gegn höfuðborginni Kænugarði og Tsjernihiv. Þá segjast Rússar ætla að hefja meiriháttar árásir á orkuinnviði Úkraínu. 31. ágúst 2026 08:40 Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar. 29. ágúst 2026 14:29 Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð Starfsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem hafa til skoðunar hvernig fækka megi bandarískum hermönnum í Evrópu ætla að leggja fram að minnsta kosti fjórar tillögur. Það verður gert fyrir 6. nóvember, fyrr en áður stóð til. Ráðamenn í Evrópu hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi í hyggju að refsa tilteknum ríkjum Evrópu. 27. ágúst 2026 13:31 Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Óvænt heimsókn yfirmanns Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) til Moskvu vakti nokkra athygli í vikunni. Þangað fór hann til að vara ráðamenn í Rússlandi við því að gera árás á ríki Atlantshafsbandalagsins eða jafnvel innrás í Eystrasaltsríki. 27. ágúst 2026 07:59 Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira
Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Úkraínsk stjórnvöld telja sig hafa njósnir um að Rússar hyggi á nýja sókn á landi gegn höfuðborginni Kænugarði og Tsjernihiv. Þá segjast Rússar ætla að hefja meiriháttar árásir á orkuinnviði Úkraínu. 31. ágúst 2026 08:40
Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar. 29. ágúst 2026 14:29
Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð Starfsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem hafa til skoðunar hvernig fækka megi bandarískum hermönnum í Evrópu ætla að leggja fram að minnsta kosti fjórar tillögur. Það verður gert fyrir 6. nóvember, fyrr en áður stóð til. Ráðamenn í Evrópu hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi í hyggju að refsa tilteknum ríkjum Evrópu. 27. ágúst 2026 13:31
Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Óvænt heimsókn yfirmanns Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) til Moskvu vakti nokkra athygli í vikunni. Þangað fór hann til að vara ráðamenn í Rússlandi við því að gera árás á ríki Atlantshafsbandalagsins eða jafnvel innrás í Eystrasaltsríki. 27. ágúst 2026 07:59