Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar 1. september 2026 08:02 Það þarf skatttekjur nærri þúsund Reykvíkinga til að afla 1.200 milljóna króna. Hver einasta króna sem fer í rekstur Reykjavíkurborgar er króna sem einhver þurfti að vinna fyrir. Það er ábyrgðarhluti að fara vel með það fé og forgangsraða rétt. Fyrr í sumar afgreiddi hagræðingarhópur borgarstjórnar tillögur sem spara rúmlega 300 milljónir á ári í Ráðhúsinu. Nú bætast við breytingar sem skila um 900 milljónum til viðbótar. Á fyrstu þremur mánuðum kjörtímabilsins hafa verið teknar stórar ákvarðanir sem samtals spara um 1.200 milljónir árlega. Sem svarar til skatttekna af nærri þúsund íbúum. Hvað er verið að gera? Það er verið að minnka kerfið til að spara fé, og geta bætt þjónustuna á vettvangi. Millistjórnendum og sérfræðingum sem veita stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf fækkar. Það er ekki verið að draga úr þjónustu við borgarbúa. Verkefni fjögurra miðstöðva sameinast í tvær þjónustueiningar. Barna- og fjölskylduþjónustu sem verður staðsett í Borgartúni. Félags- og húsnæðisþjónustu sem verður staðsett á Bíldshöfða. Með færri og öflugri fagteymum verður ábyrgðin skýrari og þjónustan samræmd um alla borg. Við erum að færa þjónustuskipulagið til nútímans. Af hverju? Í fyrsta lagi er halli á rekstri borgarinnar og nauðsynlegt að forgangsraða peningum í beina þjónustu við borgarbúa. Í öðru lagi er núverandi skipulag með stjórnsýslu og þjónustu í Borgartúni og fjórum miðstöðvum óskilvirkt og dreifir ábyrgð á of margar hendur. Í þriðja lagi er að tryggja jafnræði í þjónustu. Í sumum hverfum er veitt betri þjónusta en í öðrum, og biðlistar eru styttri. Það er ekki sanngjarnt að þjónusta við borgarbúa sé háð lögheimilisskráningu. Starfsemi miðstöðvanna hefur auk þess dregist saman undanfarin ár vegna þess að sífellt fleiri nýta sér rafræna þjónustu, og því að skipulag á þjónustu við fólk með fötlun hefur verið fært inn í Borgartún. Hvað breytist ekki? Það sem skiptir mestu er að þjónusta í hverfunum breytist ekki. Börnin mæta áfram í sinn skóla, sitt frístundaheimili og sína félagsmiðstöð. Fólk heldur áfram að vera í sambandi við sinn ráðgjafa og fá þá þjónustu sem það þekkir frá félagsþjónustunni. Nærþjónusta í hverfum, skólum og frístundastarfi verður áfram til staðar. Viðtöl og persónuleg þjónusta verða áfram í boði í hverfunum. Það þurfa ekki öll að fara í Borgartún eða á Bíldshöfða. Hvar er hagrætt? Við í Viðreisn lofuðum að minnka kerfið og setja meira í hverfin. Hagræðingin er sótt í yfirstjórn, umsýslu og húsnæðiskostnað. Stöðugildum fækkar sem leiðir til um 750 milljóna árlegs sparnaðar og húsnæðiskostnaður lækkar um 160 milljónir króna árlega. Það skapar tækifæri til að auka beina þjónustu í hverfunum. Næstu mánuðir verða nýttir til að innleiða nýtt skipulag, flytja starfsaðstöðu og búnað og tryggja að kerfi og verkferlar styðji nýtt fyrirkomulag. Miðstöðvarnar starfa í óbreyttri mynd þangað til. Höfundur er borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður hagræðingarhóps borgarstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar