Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 1. september 2026 13:01 Björn Snæbjörnsson er formaður Landssambands eldri borgara. Nýlögð komugjöld á þá sem þurfa að sækja þjónustu sjúkraþjálfara eru ekkert nema skattlagning á viðkvæman hóp í samfélaginu. Þetta segir formaður Landssambands eldri borgara. Það sé ljóst að nú muni hópur fólks þurfa að neita sér um þessa þjónustu.
Í dag varð sú breyting að komugjald leggst ofan á þá upphæð sem fólk sem sækir þjónustu sjúkraþjálfara þarf að reiða fram. Komugjaldið er 1.500 krónur fyrir hvert skipti en 1000 krónur fyrir aldraða og 500 fyrir öryrkja. Ekkert gjald leggst á börn. Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara, gerir alvarlegar athugasemdir við þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar og hefur sent heilbrigðisráðherra erindi en engin svör fengið. Hjólastóllinn bíði Hópur eldri borgara sæki þjónustuna jafnvel nokkrum sinnum í viku til að hreinlega halda sér gangandi. „Ég hef heyrt fólk tala um það sem hefur haldið sig frá hjólastólnum með því að fara oft í sjúkraþjálfun og það segir: Ég hef ekki lengur efni á að gera þetta þannig að hjólastóllinn bíður.“ Margir eldri borgarar hafi lítið á milli handanna og segir hann að eftir þessa ákvörðun muni hópur fólks þurfa að neita sér um þessa grunnþjónustu. „Það er verið að skattleggja og gera þessu fólki sem hefur það erfiðast, á minnstu peningana og þarf á þjónustunni að halda, miklu erfiðara fyrir og þarf að hætta þessu.“ Þá er ekki mikið eftir „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning og það ber líka að geta þess að þarna er verið að splitta í sundur eldri borgurum og öryrkjum. Öryrkjar fá 500 króna gjald en eldri borgarar 1000. Þetta er bara skattlagning og það er ekki verið að hugsa um þetta fólk sem hefur lægstu tekjurnar því það hefur komið í ljós að það eru 1.200 manns sem eru með tekjur upp á 399.000 krónur prúttó og þegar fólk er búið að borga allan kostnað og þarf að bæta þessu við þá er held ég ekki mikið eftir.“
Eldri borgarar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármál heimilisins Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira