Innlent

Þor­gerður sinnir starfi sveitar­stjóra í eitt ár

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þorgerður Lilja Björnsdóttir mun sinna starfinu í eitt ár.
Þorgerður Lilja Björnsdóttir mun sinna starfinu í eitt ár.

Þorgerður Lilja Björnsdóttir hefur verið ráðin í starf sveitarstjóra Árneshrepps til eins árs. 

Þetta kemur fram í fundargerð hreppsnefndar sem BB greinir frá og sömuleiðis að starfshlutfall hennar verði einungis sextíu prósent. Um sextíu manns búa í Árneshreppi.

Fyrir starfið fær Þorgerður rúmar 650 þúsund krónur í laun. Í fundargerðinni segir að laun fyrir störf við stjórnsýslu hreppsins hækki töluvert við ákvörðunina en telur meirihluti nefndarinnar að það sé nauðsynleg leiðrétting.

Þorgerður var ein af fimm sem hlutu kjör sem sveitarstjórnarfulltrúi í kosningunum í vor. Til stóð að sameina Árneshrepp og Kaldrananeshrepp en ógilti innviðaráðuneytið ógilti íbúakosningar vegna ágalla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×