Síbylja í sorginni Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar 3. september 2026 10:01 Þegar ég var tíu ára gamall þá gékk fjölskylda mín í gegnum hræðilegan harm þegar bróðir minn var myrtur. Þið sem þekkið mig vel þekkið söguna og hvernig allt þetta hafði áhrif á okkur öll, fjölskylduna, vini og samfélagið. Í minningunni, um kvöldmatarleytið þegar fréttir voru sagðar af þessum hryllilega atburði, og ég var tíu ára gamall, sá ég föður minn sitja á gólfinu í stofunni heima hjá okkur, hlusta á fréttirnar og gráta eins og barn þegar þulurinn las upp fréttir af morðinu. Ég var tíu ára gamall og var að sjá föður minn gráta í fyrsta sinn á ævinni. Pabbi var lögga og í mínum huga sem barn algjört ofurmenni. Næstu dagar og vikur, jafnvel ár, þurftum við að heyra síbylju fréttanna um þennan hræðilega atburð. Þá voru nokkur dagblöð og ein sjónvarpsstöð og ein útvarpsstöð. Það var ekkert Facebook, Snapchat, TikTok, Instagram... ekkert sem hleypti atburðinum af stað eins og eld í sinu eins og gerist í dag. Nú 46 árum síðar sé ég sömu upplifun eiga sér stað á vissan hátt. Þrjú ungmenni létust í ægilegu bílslysi þann 31. ágúst s.l. Um samfélagsmiðla ganga myndbönd á milli fólks af atburðinum í einhverri mynd. Fréttirnar velta upp dróna myndun í sífellu af vettvangi og ástvinir eru minntir á með síbylju fjölmiðlanna og ákveðnar kjaftasögur fara af stað og fólk gerir sér upp atburðarásina. Nú legg ég til að hér sé staðar numið og að ástvinir fái hvíld og næði í sorginni og þeim erfiðu sporum sem framundan eru. Ég hvet þá aðila sem hafa myndbönd af vettvangi og atburðinum að snúa sér til lögreglu sem þegar er að rannsaka slysið. Ekki horfa, ekki deila, ekki álykta um slysið. Ég hvet sérstaklega fjölmiðla að setja hér punktinn við þennan hræðilega atburð! Sendið frekar fjölskyldum og vinum ungmennana er létust mestu hjartanshlýju sem þið hafið að gefa, gefið styrk, sendið bænir og sýnið skilning. Fyrir alla muni þá gefið þeim næði. Guð blessi ungmennin þrjú, gefi ættingjum styrk og ró. Atburður þessi er því miður svo nærri manni að það er ægilegt til að vita... Höfundur er markþjálfi og ráðgjafi og auk þess 3ja barna faðir og er annt um íslenskt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Þegar ég var tíu ára gamall þá gékk fjölskylda mín í gegnum hræðilegan harm þegar bróðir minn var myrtur. Þið sem þekkið mig vel þekkið söguna og hvernig allt þetta hafði áhrif á okkur öll, fjölskylduna, vini og samfélagið. Í minningunni, um kvöldmatarleytið þegar fréttir voru sagðar af þessum hryllilega atburði, og ég var tíu ára gamall, sá ég föður minn sitja á gólfinu í stofunni heima hjá okkur, hlusta á fréttirnar og gráta eins og barn þegar þulurinn las upp fréttir af morðinu. Ég var tíu ára gamall og var að sjá föður minn gráta í fyrsta sinn á ævinni. Pabbi var lögga og í mínum huga sem barn algjört ofurmenni. Næstu dagar og vikur, jafnvel ár, þurftum við að heyra síbylju fréttanna um þennan hræðilega atburð. Þá voru nokkur dagblöð og ein sjónvarpsstöð og ein útvarpsstöð. Það var ekkert Facebook, Snapchat, TikTok, Instagram... ekkert sem hleypti atburðinum af stað eins og eld í sinu eins og gerist í dag. Nú 46 árum síðar sé ég sömu upplifun eiga sér stað á vissan hátt. Þrjú ungmenni létust í ægilegu bílslysi þann 31. ágúst s.l. Um samfélagsmiðla ganga myndbönd á milli fólks af atburðinum í einhverri mynd. Fréttirnar velta upp dróna myndun í sífellu af vettvangi og ástvinir eru minntir á með síbylju fjölmiðlanna og ákveðnar kjaftasögur fara af stað og fólk gerir sér upp atburðarásina. Nú legg ég til að hér sé staðar numið og að ástvinir fái hvíld og næði í sorginni og þeim erfiðu sporum sem framundan eru. Ég hvet þá aðila sem hafa myndbönd af vettvangi og atburðinum að snúa sér til lögreglu sem þegar er að rannsaka slysið. Ekki horfa, ekki deila, ekki álykta um slysið. Ég hvet sérstaklega fjölmiðla að setja hér punktinn við þennan hræðilega atburð! Sendið frekar fjölskyldum og vinum ungmennana er létust mestu hjartanshlýju sem þið hafið að gefa, gefið styrk, sendið bænir og sýnið skilning. Fyrir alla muni þá gefið þeim næði. Guð blessi ungmennin þrjú, gefi ættingjum styrk og ró. Atburður þessi er því miður svo nærri manni að það er ægilegt til að vita... Höfundur er markþjálfi og ráðgjafi og auk þess 3ja barna faðir og er annt um íslenskt samfélag.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar