Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 3. september 2026 11:59 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir Fulltrúi rússneska sendiráðsins var kallaður til fundar í utanríkisráðuneytinu í morgun þar sem alvarlegar athugasemdir voru gerðar við framferði Rússlands og fjölþáttaaðgerðir landsins í kjölfar drónaatviks í Þýskalandi í lok ágúst. Utanríkisráðherra segir að samstaða Íslands með Þýskalandi hafi verið áréttuð eftir drónaatvik. Leiðtogar NATO og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vöruðu í gær við því að hegðun Rússa verði sífellt glannalegri og heita því að bregðast við „nýju ástandi“. Sendiherrar Rússa hafa víða í Evrópu verið kallaðir til fundar vegna niðurstöðu þýskra rannsakenda að Rússar hafi staðið að fjölþátta árás í Þýskalandi í síðustu viku. Íslensk stjórnvöld brugðust við í morgun að sögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. „Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á sinn fund í dag þar sem samstaða Íslands með Þýskalandi var áréttuð í ljósi drónaatviks í Leipzig þann 4. ágúst sl. Við erum að fara svipaðar leiðir og margar aðrar þjóðir að mótmæla þessari drónaárás. Við skulum hafa það hugfast að fjölþáttaógnir eru í rauninni dauðans alvara fyrir vestræn samfélög og það hvernig er verið að markvisst að beita slíkum ógnum. Þetta er nútímahernaður og vestræn samfélög verða einfaldlega að vera í mikilli samvinnu, sýna samstöðu og vera tilbúin,“ segir Þorgerður. Svar utanríkisráðuneytisins í heild við fyrirspurn fréttastofu má sjá í heild að neðan. Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á sinn fund í dag, þar sem samstaða Íslands með Þýskalandi var áréttuð í ljósi drónaatviks í Leipzig þann 4. ágúst sl. Rannsóknir þýskra stjórnvalda staðfesta að atvikið hafi verið unnið af aðilum á vegum rússneskra stjórnvalda. Á fundinum gerðu íslensk stjórnvöld alvarlegar athugsemdir við framferði Rússlands og þær fjölþáttaaðgerðir sem Rússar nota til að grafa undan öryggi Evrópu og hafa áhrif á stuðning Þýskalands og annarra bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins við Úkraínu. Þá var einnig komið á framfæri fordæmingu íslenskra stjórnvalda á stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu og þeirri stigmögnun sem nú á sér stað með grimmilegum loftárásum Rússa á almenna borgara í Úkraínu. Þá var fulltrúum Rússlands gert skýrt grein fyrir því að stuðningur Íslands við Úkraínu sé staðfastur og verði það áfram. Óboðlegt framferði Aðspurð um viðbrögð fulltrúans svarar Þorgerður: „Hann tók á móti þessu. Þetta er afstaða Íslendinga og íslenskra stjórnvalda. Við stöndum með okkar vinaþjóð. Við höldum líka áfram að styðja við Úkraínu og erum að mótmæla þessum grimmilega stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu sem er í gangi þessa dagana.Framferði Rússa er óboðlegt.“ Aðspurð um hvernig Ísland geti varið sig gegn fjölþáttaógnum svarar Þorgerður: „Með því að vera í góðri samvinnu við okkar vinaríki og vera verðugur bandamaður innan NATO. Halda áfram góðri samvinnu við ríki Evrópu og Evrópusambandið sem er í fararbroddi þegar kemur að vörnum gegn fjölþáttaógnum. Við erum líka að byggja upp okkar innviði og það er gott að finna það að önnur ríki eru líka að hugsa um Ísland líkt og allt svæðið innan Atlantshafsbandalagsins.“ Fréttin hefur verið uppfærð. Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira
Leiðtogar NATO og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vöruðu í gær við því að hegðun Rússa verði sífellt glannalegri og heita því að bregðast við „nýju ástandi“. Sendiherrar Rússa hafa víða í Evrópu verið kallaðir til fundar vegna niðurstöðu þýskra rannsakenda að Rússar hafi staðið að fjölþátta árás í Þýskalandi í síðustu viku. Íslensk stjórnvöld brugðust við í morgun að sögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. „Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á sinn fund í dag þar sem samstaða Íslands með Þýskalandi var áréttuð í ljósi drónaatviks í Leipzig þann 4. ágúst sl. Við erum að fara svipaðar leiðir og margar aðrar þjóðir að mótmæla þessari drónaárás. Við skulum hafa það hugfast að fjölþáttaógnir eru í rauninni dauðans alvara fyrir vestræn samfélög og það hvernig er verið að markvisst að beita slíkum ógnum. Þetta er nútímahernaður og vestræn samfélög verða einfaldlega að vera í mikilli samvinnu, sýna samstöðu og vera tilbúin,“ segir Þorgerður. Svar utanríkisráðuneytisins í heild við fyrirspurn fréttastofu má sjá í heild að neðan. Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á sinn fund í dag, þar sem samstaða Íslands með Þýskalandi var áréttuð í ljósi drónaatviks í Leipzig þann 4. ágúst sl. Rannsóknir þýskra stjórnvalda staðfesta að atvikið hafi verið unnið af aðilum á vegum rússneskra stjórnvalda. Á fundinum gerðu íslensk stjórnvöld alvarlegar athugsemdir við framferði Rússlands og þær fjölþáttaaðgerðir sem Rússar nota til að grafa undan öryggi Evrópu og hafa áhrif á stuðning Þýskalands og annarra bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins við Úkraínu. Þá var einnig komið á framfæri fordæmingu íslenskra stjórnvalda á stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu og þeirri stigmögnun sem nú á sér stað með grimmilegum loftárásum Rússa á almenna borgara í Úkraínu. Þá var fulltrúum Rússlands gert skýrt grein fyrir því að stuðningur Íslands við Úkraínu sé staðfastur og verði það áfram. Óboðlegt framferði Aðspurð um viðbrögð fulltrúans svarar Þorgerður: „Hann tók á móti þessu. Þetta er afstaða Íslendinga og íslenskra stjórnvalda. Við stöndum með okkar vinaþjóð. Við höldum líka áfram að styðja við Úkraínu og erum að mótmæla þessum grimmilega stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu sem er í gangi þessa dagana.Framferði Rússa er óboðlegt.“ Aðspurð um hvernig Ísland geti varið sig gegn fjölþáttaógnum svarar Þorgerður: „Með því að vera í góðri samvinnu við okkar vinaríki og vera verðugur bandamaður innan NATO. Halda áfram góðri samvinnu við ríki Evrópu og Evrópusambandið sem er í fararbroddi þegar kemur að vörnum gegn fjölþáttaógnum. Við erum líka að byggja upp okkar innviði og það er gott að finna það að önnur ríki eru líka að hugsa um Ísland líkt og allt svæðið innan Atlantshafsbandalagsins.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á sinn fund í dag, þar sem samstaða Íslands með Þýskalandi var áréttuð í ljósi drónaatviks í Leipzig þann 4. ágúst sl. Rannsóknir þýskra stjórnvalda staðfesta að atvikið hafi verið unnið af aðilum á vegum rússneskra stjórnvalda. Á fundinum gerðu íslensk stjórnvöld alvarlegar athugsemdir við framferði Rússlands og þær fjölþáttaaðgerðir sem Rússar nota til að grafa undan öryggi Evrópu og hafa áhrif á stuðning Þýskalands og annarra bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins við Úkraínu. Þá var einnig komið á framfæri fordæmingu íslenskra stjórnvalda á stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu og þeirri stigmögnun sem nú á sér stað með grimmilegum loftárásum Rússa á almenna borgara í Úkraínu. Þá var fulltrúum Rússlands gert skýrt grein fyrir því að stuðningur Íslands við Úkraínu sé staðfastur og verði það áfram.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira