Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar 3. september 2026 16:02 Í ár fagna Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) 50 ára afmæli og er því tilefni til að líta yfir farinn veg og á þann sem bíður ótroðinn. Við stofnun SSH árið 1976 stóðu enn torfbæir á höfuðborgarsvæðinu. Einn sá síðasti, Litla-Brekka í Reykjavík, var rifinn í kringum 1980 og í dag eru um 100.000 íbúðareiningar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta undirstrikar þá undraverðu þróun sem hefur átt sér stað á þessu tímabili. Almennt séð voru þéttbýliskjarnar ótengdir og þjónusta á milli þeirra ósamræmd, þrátt fyrir að vilji og þörf hafi verið til þess að líta á höfuðborgarsvæðið sem eitt samfellt búsetusvæði. Nú er öldin önnur og landshlutinn einnig. Frá stofnun SSH hefur íbúafjöldi höfuðborgarsvæðisins meira en tvöfaldast úr u.þ.b. 120.000 í rúmlega 250.000 manns. Þjónusta, menning og afþreying hefur tekið stakkaskiptum og þrátt fyrir sveitarfélagamörk fara íbúarnir um allt svæðið til þess að sækja vinnu, þjónustu og tómstundir. Vegir, göngu- og hjólastígar hafa byggst upp og heilu hverfin risið á svæðum sem áður töldust víðerni. Þessi þróun svæðisins sem nú er alþjóðlega samkeppnishæft atvinnu- og þjónustusvæði, hefur kallað á nánara og meira samstarf sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins á vettvangi SSH. Á stofnfundi SSH í Hlégarði í Mosfellsbæ árið 1976 var það sameiginleg sýn sveitarstjórnarfólks að til mikils væri að vinna með samvinnu sveitarfélaganna. Þessi samstarfsvilji var seinna formfestur með fyrsta svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins árið 1986 en núgildandi svæðisskipulag er frá árinu 2015. Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins sem er starfsrækt hjá SSH hefur, ásamt svæðisskipulagsstjóra, með höndum stjórnun og utanumhald með þróun þess og framgangi. Starfsemi SSH lýtur oft að umfangsmiklum samstarfsverkefnum, líkt og því að stofna til samstarfsettvangs ríkis og sveitarfélaga um ýmis verkefni. Auk samvinnu á sviði skipulagsmála hafa ýmis önnur verðug samstarfsverkefni á vettvangi SSH styrkt höfuðborgarsvæðið sem eina heild. Á síðustu áratugum hefur grettistaki verið lyft þegar kemur að samræmdri þjónustu á svæðinu s.s. á sviði úrgangsmála, almenningssamgangna, slökkviliðs og almannavarna, skóla- og velferðarmála. Á meðal stærstu samstarfsáfanga síðustu ára er samkomulag við ríkið um framtíðarsýn og uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2040 (Samgöngusáttmálinn). Áhersla er lögð á að bjóða upp á skýra valmöguleika fyrir akandi, hjólandi, gangandi og þau sem velja almenningssamgöngur. Samstarfið fer vaxandi Stofnun byggðasamlaganna Strætó, Sorpu, og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins mörkuðu stór skref í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og verkefnin þar, stór og smá, eru í stöðugri þróun. SSH og sveitarfélögin eru aðilar að Betri samgöngum ohf. sem sjá um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu og ASHB ohf. sem er nýtt félag um rekstur almenningssamgangna í samstarfið við ríkið. Í sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins og áhersluverkefnum hennar felast tækifæri til að koma mikilvægum verkefnum á dagskrá. Frá árinu 2020 hefur verið stofnað til um 40 samstarfsverkefna á vettvangi SSH sem í felast fjölbreyttar áskoranir, allt frá velferð til veitumála. Þar er veitt súrefni inn í nýsköpun, menningarlíf og atvinnuþróun á svæðinu. Markmiðið er ætíð það sama, þ.e. að höfuðborgarsvæðið standist fyllilega samkeppni við erlend borgarsvæði þegar kemur að lífskjörum, menntun og innviðum. Sem dæmi um verkefni af þessum toga má nefna skýrslu um úrbætur í skólastarfi, samstarf við ríkið um uppbyggingu sérskólaúrræða, álagsdreifingu umferðar, stofnun Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, nýtingu gervigreindar í starfsemi sveitarfélaga, samþykkta loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins, sameiginlega úrgangsflokkun, forvarnir og geðrækt ungmenna, útivistarvefinn utumallt.is og svo lengi mætti telja. Þá hafa SSH einnig haldið utan um stofnun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins sem hefur það markmið að samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Vettvangur SSH gerir sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins kleift að ná breiðri, þverpólitískri samstöðu um málefni sem auka lífsgæði íbúanna. Samvinnan hefur aukist með tímanum enda sjá sveitarfélögin sér sífellt aukinn hag í frekari samvinnu til hagsbóta fyrir íbúana og að því markmiði að auka samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins. Samstarfið er þó ekki eingöngu á formlegu nótunum. Milli sveitarstjórnarfólks á öllu svæðinu eiga sér stað samtöl og fundir þar sem komið er saman til þess að fara yfir sameiginleg mál, læra hvort af öðru og koma fram með hugmyndir sem oft enda síðan í formlegu samstarfi. Samstaða næstu 50 árin Þegar horft er til framtíðar er líklegt að hlutverk SSH muni síst minnka. Áskoranir í húsnæðismálum, tækniframförum, samgöngumálum, stafrænni umbreytingu, velferðar- og skólamálum mun kalla á enn dýpra samstarf. Ekki síst þegar kemur að þeirri hagsmunagæslu sem er nauðsynleg til að verja hagsmuni sveitarfélaganna. Eins og sjá má er af mörgu að taka en mikilvægt er að forgangsraða verkefnum þannig að af þeim hljótist beinn sýnilegur árangur og sveitarfélögin haldi áfram að blómstra hvert og eitt, þótt samstarf sé í mikilvægum málaflokkum. Enginn er eyland – ekki einu sinni sveitarfélög. Farsæl og árangursrík samvinna er ekki sjálfgefin en snertir alla íbúa svæðisins sem sinna daglegum athöfnum og erindum þvert á sveitarfélagamörk. Þegar sveitarstjórnir taka höndum saman er það ekki ávinningur eins, heldur allra þeirra sem kjósa að lifa og starfa á höfuðborgarsvæðinu. Nýir tímar kalla fram nýjar áskoranir og tækifærin fyrir áframhaldandi samvinnu eru fjölmörg. Síðustu 50 ár hafa sýnt okkur að til margs er að vinna. Höfundur er framkvæmdarstjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Greinin er rituð í tilefni 50 ára afmælis Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar