Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. september 2026 08:01 Það er eitthvað mjög áhugavert að gerast hjá SÁÁ þessa dagana. Þrír lykilstjórnendur hafa horfið frá störfum á skömmum tíma og fráfarandi fagstjórnendur hafa gagnrýnt stjórn samtakanna fyrir afskipti af faglegu starfi. Stjórnin hafnar því að hafa farið inn á það svið og bendir á að henni beri jafnframt að hafa eftirlit með starfseminni. Ég ætla ekki að dæma hver hefur rétt fyrir sér í þeim ágreiningi. En mér finnst hann draga fram spurningu sem við þurfum miklu meira að tala um í íslenska heilbrigðiskerfinu í heild sinni: Hver má spyrja fagfólkið? Ég þekki þessa umræðu. Ég hef sjálf setið hinum megin við borðið og spurt spurninga um starfsemi, ákvarðanir og verklag. Af hverju gerum við þetta svona? Hverju byggir þetta á? Gæti önnur leið virkað betur? Og ég hef upplifað að spurningunni sé ekki svarað með rökum heldur með því að ég sé komin inn á svið sem ég eigi ekki að vera á. Ég sé ekki alltaf skýrt hvar mörkin liggja milli þess að „skipta sér af faglegu starfi“ og þess að veita faglegu starfi nauðsynlegt aðhald. Og ég held að við þurfum að þora að tala um það. Auðvitað á stjórn SÁÁ ekki að ákveða meðferð einstakra sjúklinga. Auðvitað á ráðherra ekki að segja lækni hvaða lyf hann eigi að skrifa upp á. Auðvitað þarf fagfólk sjálfstæði til að beita þekkingu sinni. En þar með er ekki sagt að allt sem gerist undir fyrirsögninni „faglegt“ sé undanþegið gagnrýni. Því heilbrigðisþjónusta er ekki náttúrulögmál. Hún er byggð upp af fólki. Meðferðarleiðir eru valdar af fólki. Verklag er samið af fólki. Viðmið eru ákveðin af fólki. Einhver ákveður hvað telst árangur. Einhver ákveður hvenær meðferð er lokið. Einhver ákveður hver fær þjónustu og hver fær hana ekki. Og einhver þarf að mega spyrja hvort þessar ákvarðanir séu góðar. „Svona er þetta bara“ Ég hef verið að fylgja ömmu í gegnum heilbrigðis- og velferðarkerfið undanfarið. Þar rekst ég aftur og aftur á sömu hugsun. Endurhæfingu er lokið. Það er búið að útskrifa. Þetta er ekki lengur á okkar borði. Svona er verklagið. Það skiptir þá engu að manneskjan sem kerfið hefur lokið afgreiðslu á sé jafnvel verri en þegar hún kom inn. Kerfið hefur lokið málinu. Manneskjan hefur það ekki. Og einmitt þá þarf einhver að mega segja: Bíddu aðeins. Virkar þetta? Ekki: fylgdum við verklaginu? Heldur: virkaði það? Það er allt önnur spurning. Þegar fagmennskan verður friðhelg Við erum með gríðarlega mikið af mjög hæfu og góðu fagfólki á Íslandi er okkur sagt. En hæft fólk getur unnið í lélegu kerfi. Gott fagfólk getur fylgt úreltu verklagi. Mjög vel menntað fólk getur vanist vinnubrögðum sem þyrfti fyrir löngu að endurskoða. Og heil fagstétt getur verið sammála um eitthvað sem reynist síðar rangt. Saga læknisfræðinnar ætti að hafa kennt okkur það. Það er einmitt þess vegna sem fagmennska verður að þola gagnrýni. Sérfræðiþekking veitir vald. Og þar sem er vald þarf að vera aðhald. Við höfum reyndar formlegt eftirlit. Embætti landlæknis hefur lögbundið eftirlitshlutverk gagnvart heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsfólki. Hvernig það er svo í praxís er annað. En ég er ekki bara að tala um formlegt eftirlit. Ég er að tala um menninguna. Menningu þar sem notandi spyr. Aðstandandi spyr. Stjórn spyr. Stjórnmálamaður spyr. Fjölmiðill spyr. Og spurningunni er ekki vísað frá vegna þess að sá sem spurði sé ekki læknir, hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur eða annar sérfræðingur. Því stundum þarf einmitt manneskju utan kerfisins til að spyrja spurningarinnar sem allir innan þess eru hættir að sjá. Passar eitt fyrir alla? SÁÁ lýsir sjálft meðferð sinni sem einstaklingsmiðaðri og byggðri á faglegum og gagnreyndum aðferðum. Gott og vel. En það má samt spyrja spurninganna. Hversu einstaklingsmiðuð er heilbrigðisþjónusta okkar í raun? Hvað gerist þegar manneskja passar ekki við úrræðið? Hvað gerist þegar sú meðferð sem almennt virkar virkar ekki fyrir þennan einstakling? Hversu auðvelt er að skipta um nálgun? Hversu mikið ræður notandinn sjálfur? Hvaða niðurstöður mælum við? Og hvað gerum við við þá sem kerfið nær ekki árangri með? Það eru ekki ófaglegar spurningar. Þær eru nauðsynlegar spurningar. Kannski er þetta einmitt það sem umræðan um SÁÁ getur gefið okkur tækifæri til að ræða. Ekki bara hvort stjórn fór yfir einhver ósýnileg mörk inn á starfssvið fagfólks. Heldur líka: Hvar eiga þessi mörk að vera? Stjórn á ekki að stunda lækningar. En stjórn hlýtur að mega spyrja hvort þjónusta virki. Stjórnmálamaður á ekki að ákveða meðferð. En hann hlýtur að mega spyrja hvort kerfið skili árangri fyrir þá fjármuni sem samfélagið setur í það. Aðstandandi á ekki að vera læknir. En hann hlýtur að mega segja að amma sé verri eftir endurhæfinguna en fyrir hana. Og notandinn á ekki að þurfa prófgráðu til að mega segja: Þetta virkar ekki fyrir mig. Það er ekkert ófaglegt við það. Kannski þurfum við að hjóla í verklagið Við ræðum nánast stöðugt um vanda heilbrigðiskerfisins. Peninga. Mönnun. Biðlista. Rými. Álag. Allt eru þetta raunveruleg vandamál. En kannski þurfum við líka að fara að tala miklu meira um vinnuna sjálfa. Hvernig vinnum við? Af hverju vinnum við svona? Hvað höfum við alltaf gert bara vegna þess að við höfum alltaf gert það? Hvar tapast fólk milli kerfa? Hvar er verklag orðið mikilvægara en niðurstaðan? Hvar er „faglegt mat“ orðið punktur í samtali sem hefði átt að vera rétt að byrja? Það er ekki atlaga að heilbrigðisstarfsfólki. Þvert á móti. Gott fagfólk á skilið kerfi sem er tilbúið að læra, breytast og leiðrétta sig. En þá verðum við að hætta að rugla saman faglegu sjálfstæði og faglegri friðhelgi. Faglegt starf þarf sjálfstæði. Það þarf líka aðhald. Það þarf gagnrýni. Og öðru hverju þarf einhver að vera nógu óþægilegur til að spyrja: Af hverju í ósköpunum gerum við þetta ennþá svona? Höfundur er mannréttindalögfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar