Sport

Tekur á sig gagn­rýni svo aðrir fái hana ekki

Andri Broddason skrifar
Naomi Osaka notar frumlegan klæðaburð til þess að tjá sig inn á vellinum
Naomi Osaka notar frumlegan klæðaburð til þess að tjá sig inn á vellinum Julian Finney/Getty Images

Tenniskonan Naomi Osaka er mikill tískuunnandi og setur vinnu í klæðnað sinn fyrir öll stórmót. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir klæðaburðinn sinn en henni finnst það þess virði ef það auðveldar fyrir næstu kynslóð að klæða sig eins og hana langar.

Naomi Osaka datt úr leik á Opna bandaríska risamótinu í tennis þegar hún mætti Elenu Rybakina frá Kazakhstan í 16-liða úrslitum sem verður efst á heimslistanum í tennis eftir mótið. Hún klæddist mismunandi yfirhöfnum í hverjum leik en það var ákveðið þema sem hún hélt í.

Innan undir glæsilegum kápum hennar var hún í svörtum körfuboltafötum og var búin að flétta hárið sitt. Þetta var skírskotun í körfuboltamanninn Allen Iverson sem braut blað í NBA-deildinni bæði með frammistöðu sinni á vellinum og klæðaburði hans og tjáningu.

Osaka segist vera stolt af því að vera fyrst til að gera eitthvað þrátt fyrir að fólk taki ekki vel í það. Hún var mikið gagnrýnd fyrir nokkrum árum þegar hún talaði opinskátt um andlegu heilsuna sína. Hún var ein af þeim fyrstu í tennisheiminum til að gera það opinskátt og svo virðist sem hún sé að gera það sama með klæðaburð sinn.

Osaka er japönsk og á japanska móður en faðir hennar er hálfur frá Haíti og hálfur frá Bandaríkjunum. Hún segir að Haítí-hluti blóðsins hennar sé ástæðan fyrir því að hún taki á sig hitann svo aðrir hafi það auðveldara sem koma á eftir henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×