Leiðir skilja hjá leikhúspari Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. september 2026 13:45 Sigurbjartur Sturla Atlason og Kolfinna Nikulásdóttir hafa farið hvort í sína áttina eftir um tveggja ára samband. Owen Fiene Leikstjórinn Kolfinna Nikulásdóttir og leikarinn Sigurbjartur Sturla Atlason hafa slitið sambandi sínu. Þau hafa verið eitt heitasta par íslensku leikhússenunnar síðustu tvö ár, kynntust við uppsetningu á Ást Fedru og unnu aftur saman að Hamlet á síðasta leikvetri. Kolfinna segir þau skilja í góðu og munu verða vini að eilífu.
Kolfinna hefur verið einn eftirtektarverðasti leikstjóri landsins síðustu ár og Sigurbjartur vakið athygli fyrir leik sinn og tónlist. Leiðir þeirra lágu fyrst saman þegar Kolfinna leikstýrði Sigurbjarti í Ást Fedru í Þjóðleikhúsinu haustið 2023 og byrjuðu þau að slá sér upp vorið eftir það. Vísir greindi svo frá því í september 2024 að parið hefði keypt saman íbúð á Mýrargötu og væru flutt inn saman. Sjá einnig: Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Kolfinna leikstýrði Sigurbjarti aftur á síðasta leikvetri þar sem hann fór með aðalhlutverkið í harmleiknum Hamlet í Borgarleikhúsinu. Sýningin fékk misjafna dóma og vakti mikla athygli, ekki síst vegna yfirlýsinga Kolfinnu. „Við Bjartur munum vera vinir að eilífu“ Samkvæmt heimildum fréttastofu hætti parið saman rétt fyrir sumarbyrjun og settu þau íbúð sína á Mýrargötu í kjölfarið á sölu í júní. „Við erum hætt saman,“ sagði Kolfinna þegar blaðamaður hafði samband til að spyrja hana út í sambandsslitin. Samstarf - Sambíóin Kolfinna fékk í janúar styrk úr Sviðslistasjóði til að þróa leikritið Nýja Ísland sem ber undirtitilinn „make theatre great again“. Til stóð að hún myndi vinna verkefnið með Sigurbjarti og fleiri leikurum en hann verður hins vegar ekki með í verkefninu. „Við Bjartur munum vera vinir að eilífu. Það er bara kærleikur okkar á milli. Við vinnum ótrúlega vel saman og munum gera það, við erum frábært teymi. En í þetta skiptið þá er ég að leiða þetta verkefni, er búin að ráða inn annan leikara og það er allt uppi á borðum. Þetta er allt í vinsemd,“ sagði hún um leikritið. „Enfant horrible“ samanborið við Hamlet Kolfinna hyggst þróa áfram í sýningunni þær aðferðir sem hún hefur mótað í sýningum á borð við The Last Kvöldmáltíð, Ást Fedru og Hamlet. Sýningin verður frumsýnd í mars og er nokkuð dulúð yfir henni. „Ef Hamlet var enfant terrible þá er þetta enfant horrible. Þetta verður algjör leikhúsupplifun,“ sagði Kolfinna um verkið. Enfant terrible þýðir á frönsku hræðilegt barn og er gjarnan notað um fólk sem hneykslar með framkomu sinni, hugmyndum eða óhefðbundnum aðferðum. Meðal leikara í verkinu verða Aron Már Ólafsson, sem kemur inn í stað Sigurbjarts, og Nikulás Hansen Daðason. „Áhorfendur geta búist við því að verða mjög hissa en það er náttúrulega mitt mottó: „Make them hissa“,“ sagði Kolfinna jafnframt. Ótilgreind staðsetning og gengið lengra en áður „Við erum að rannsaka samtímann í tengslum við rísandi hernað út um allan heim, tækniþróun og þróun í samskiptum. Og hvar við erum alveg present, það er náttúrulega í leikhúsinu,“ sagði Kolfinna um verkið. „En leikhúsið er alltaf á eftir og er að eltast við, eins og TikTok-leikhús eða Ted-fyrirlestrar, þannig það verður í sjálfu sér ekki present. Svona umbúðaglassúr-brundleikhús,“ bætti hún við. Útgangspunkturinn sé að skoða stöðu leikhússins í samfélaginu. „Ég er að þróa mínar aðferðir en ég byggi á öllu sem ég hef unnið. Ég er að fara lengra en ég fór í Hamlet, Ást Fedru og The Last Kvöldmáltíð og ég er ekki að fara inn í stofnanirnar af því ég ætla að taka þetta aðeins út fyrir það. Mér finnst vöntun á því að hrista upp í þessu og ég er að gefa mér leyfi og pláss,“ sagði Kolfinna. Sýningin verður ekki sýnd í stóru leikhúsunum tveimur né í Tjarnarbíói þar sem hún hefur sýnt áður heldur á ótilgreindum stað. „Ég vil ekki gefa upp staðsetninguna, fólk mun fá heimilisfang og þarf að mæta þangað. Þegar þú kaupir miða þá fyrst veistu hvar verkið er,“ sagði Kolfinna.
Ástin og lífið Tímamót Leikhús Tengdar fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Kolfinna Nikulásdóttir mun leikstýra einu þekktasta og vinsælasta verki leikhússögunnar, sjálfum Hamlet, sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 31. október næstkomandi. Leikarinn Sigurbjartur Sturla Atlason, betur þekktur sem Sturla Atlas og jafnframt kærasti Kolfinnu, fer með aðalhlutverk sýningarinnar. 12. ágúst 2025 14:32 Sturla Atlas og Kolfinna flytja inn saman Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, tónlistarmaður og leikari, hafa fest kaup á íbúð við Mýrargötu í Reykjavík. 10. september 2024 09:41 Sturla Atlas og Kolfinna slá sér upp Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, tónlistarmaður og leikari, hafa sést víða saman á opinberum vettvangi nýverið og virðast láta vel að hvort öðru. 18. mars 2024 14:30 Mest lesið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Áskorun Fleiri fréttir Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Sjá meira
Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Kolfinna Nikulásdóttir mun leikstýra einu þekktasta og vinsælasta verki leikhússögunnar, sjálfum Hamlet, sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 31. október næstkomandi. Leikarinn Sigurbjartur Sturla Atlason, betur þekktur sem Sturla Atlas og jafnframt kærasti Kolfinnu, fer með aðalhlutverk sýningarinnar. 12. ágúst 2025 14:32
Sturla Atlas og Kolfinna flytja inn saman Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, tónlistarmaður og leikari, hafa fest kaup á íbúð við Mýrargötu í Reykjavík. 10. september 2024 09:41
Sturla Atlas og Kolfinna slá sér upp Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, tónlistarmaður og leikari, hafa sést víða saman á opinberum vettvangi nýverið og virðast láta vel að hvort öðru. 18. mars 2024 14:30