„Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Smári Jökull Jónsson skrifar 9. september 2026 16:35 Inga Sæland biður leikskólakennara afsökunar. Vísir/Anton Brink Inga Sæland segir að henni hafi orðið fótaskortur á tungunni þegar hún hvatti fólk til að gerast „leikskólakennarar og alvöru kennarar“ í viðtali um skólamál í Reykjavík síðdegis í gær. Biður hún leikskólakennara afsökunar og segist líta ofboðslega mikið upp til stéttarinnar.
Orðin féllu í þættinum Reykjavík síðdegis í gær í umræðu um að fjölga þyrfti í hópi nema í leikskólafræðum og vöktu óánægju í hópi leikskólakennara. Í hádegisfréttum á Bylgjunni sagði Linda Ósk Sigurðardóttir, formaður svæðafélags leikskólakennara í Reykjavík, að fólk væri slegið og hún myndi vilja að ráðherra bæri virðingu fyrir hennar starfstétt. Þá sagði Haraldur F. Gíslason formaður Félags leikskólakennara að orðin væru ekki menntamálaráðherra sæmandi en tók jafnframt fram að leikskólakennarar myndu fyrirgefa henni þessa yfirsýn. „Lít alveg ofboðslega mikið upp til þessarar stéttar“ Nú hefur Inga sjálf beðist afsökunar en það gerði hún í upphafi þáttar Reykjavík síðdegis nú áðan. Hún segist skilja vel að orðin hafi farið fyrir brjóstið á leikskólakennurum, henni hafi orðið fótaskortur á tungunni og þetta hafi ekki verið það sem hún var að meina. „Ég virði þau af öllu hjarta og lít alveg ofboðslega mikið upp til þessarar stéttar. Það sem ég ætlaði einfaldlega að segja þegar ég var að biðja þau um að koma með var að koma með og verða kennarar og sérhæfðir kennarar. Því ég er alltaf að segja að okkur vantar meiri sérhæfingu inn í kennsluna en mér varð fótaskortur og orðið „alvöru“ kom inn í staðinn,“ sagði Inga í þættinum nú áðan. „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta og ég meina það. Þetta var óvart og ekki það sem ég var að meina,“ bætti Inga við. „Þetta kom mér í opna skjöldu“ Hún bætti við að verið væri að taka utan um leikskólabörnin frá fyrsta degi og þau væru núna komin inn í svokallaðan nemendagrunn. Inga sagðist ekki hafa heyrt frá leikskólakennurum í dag. „Nú er náttúrulega önnur stefnuræða forsætisráðherra í kvöld og ég er með ræðu og er búinn að vera á þingflokksfundi og fleiri fundum og að undirbúa mína ræðu. Þetta kom mér í opna skjöldu,“ sagði Inga um gagnrýnina. „Ég var ekki búin að átta mig á að mér hafði orðið þessi ömurlegi fótaskortur á tungunni og biðst frá mínum innstu hjartarótum hjartanlega fyrirgefningar á því að hafa komið þessu svona frá mér.“
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Leikskólar Börn og uppeldi Tengdar fréttir „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Formaður Félags leikskólakennara segir orð Ingu Sæland ráðherra í Reykjavík síðdegis ekki hafa verið góða byrjun á því samtali að fjölga kennurum á leikskólastiginu. Þau hafi ekki farið vel í leikskólakennara en að henni verði fyrirgefin þessi yfirsjón. 9. september 2026 15:43 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
„Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Formaður Félags leikskólakennara segir orð Ingu Sæland ráðherra í Reykjavík síðdegis ekki hafa verið góða byrjun á því samtali að fjölga kennurum á leikskólastiginu. Þau hafi ekki farið vel í leikskólakennara en að henni verði fyrirgefin þessi yfirsjón. 9. september 2026 15:43