Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Kristján Már Unnarsson skrifar 10. september 2026 10:50 Starfsmaður Aviationtag sker bút úr Heklu Aurora. Aviationtag Norðurljósaflugvélin Hekla Aurora fór ekki öll í bræðslupotta. Þýskt félag, Aviationtag, með aðsetur í Köln, fékk við niðurrif hennar að skera búta úr skrokknum til að smíða úr þeim minjagripi. „
Boeing 757-þotan lauk þjónustu sinni haustið 2025 en núna fær hluti af upprunalega skrokknum nýtt líf í takmörkuðu upplagi, hannað í samstarfi við Icelandair,“ segir í kynningu Aviationtag. Norðurljósaflugvélin í júlímánuði í sumar þegar verið var að skera búta úr skrokknum.Aviationtag Hekla Aurora var þann 12. október í fyrra kvödd með sérstöku kveðjuflugi frá Reykjavíkurflugvelli. Um 140 flugnördar, þar af um 70 útlendingar, keyptu sér far með þotunni sem yfirflugfreyjan um borð sagði farþegum í hátalakerfi að væri fallegasta flugvél í heimi. Verkið var unnið á á Lleida–Alguaire flugvelli á Spáni.Aviationtag Þotan var rifin á Lleida–Alguaire flugvelli á Spáni en hann er um 150 kílómetra vestnorðvestan Barcelona. Starfsmenn Aviationtag voru þar júlímánuði í sumar að skera búta úr álskrokknum sem enn hélt norðurljósaútlitinu. Úr þeim hafa þeir unnið flugmerkispjöld sem hengja má á töskur eða nota sem lyklakippur. Merkispjöldin sem búið er að gera úr Boeing 757-þotunni Heklu Aurora.Aviationtag Á heimasíðu Aviatontag segir að flugmerkin úr Heklu Aurora séu sem stendur uppseld. Framleiðslan haldi þó áfram og ný merki bætist við daglega. Það taki tíma að útbúa hvert merki. Verðið er frá 39,95 evrum stykkið, eða um 5.600 krónur íslenskar. Minjagripirnir koma í mismunandi litum eftir því hvaðan þeir voru skornir af skrokknum.Aviationtag Flugvélin var upphaflega smíðuð fyrir spænska flugfélagið Iberia og flaug fyrst í apríl 1994. Icelandair eignaðist hana tíu árum síðar, árið 2004. Norðurljósaútlitið fékk hún þó ekki fyrr en árið 2014 en þá var hún endurmáluð hjá fyrirtæki í Norwich á Englandi. Í lýsingu segir að málararnir hafi unnið út frá ljósmyndum og endurskapað norðurljósin á skrokknum með því að nota flókna tækni í málningasprautun. Þeir hafi verið listamenn og hafi parað vandlega saman flæðandi liti og bætt við íslensku vetrarlandslagi fyrir neðan. Grænir, tyrkisbláir, bláir og djúpir miðnæturtónar hafi blandast saman. Í farþegarýmið hafi verið sett sérsniðið LED-lýsingarkerfi með norðurljósaupplifun. Hér má sjá kveðjuflugið frá Reykjavíkurflugvelli síðastliðið haust:
Icelandair Boeing Flug Reykjavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin Niðurrif Boeing 757-þotunnar Heklu Auroru, eða Norðurljósaþotunnar, er hafið. Flugáhugamenn sögðu margir þotuna eina fegurstu flugvél heims en hún flaug sitt síðasta flug í október síðastliðnum. 3. september 2026 18:45 Flugnördar heims kveðja fegurstu flugvél Íslands Það er fullyrt að hún sé fegursta flugvél í heimi. Og hún er heimsfræg meðal flugnörda, sem flykktust til Íslands úr öllum heimshornum til að kveðja hana í dag. 12. október 2025 22:12 Hún er sögð með fagrar línur, vel byggð, háfætt og rennileg Hún er sögð falleg á að líta, vel byggð, samsvara sér vel, háfætt, með fagrar línur og rennileg. Í þessu tilviki erum við ekki að tala um manneskju heldur um flugvél. 25. mars 2025 22:44 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Sjá meira
Fegursta flugvél Íslands rifin Niðurrif Boeing 757-þotunnar Heklu Auroru, eða Norðurljósaþotunnar, er hafið. Flugáhugamenn sögðu margir þotuna eina fegurstu flugvél heims en hún flaug sitt síðasta flug í október síðastliðnum. 3. september 2026 18:45
Flugnördar heims kveðja fegurstu flugvél Íslands Það er fullyrt að hún sé fegursta flugvél í heimi. Og hún er heimsfræg meðal flugnörda, sem flykktust til Íslands úr öllum heimshornum til að kveðja hana í dag. 12. október 2025 22:12
Hún er sögð með fagrar línur, vel byggð, háfætt og rennileg Hún er sögð falleg á að líta, vel byggð, samsvara sér vel, háfætt, með fagrar línur og rennileg. Í þessu tilviki erum við ekki að tala um manneskju heldur um flugvél. 25. mars 2025 22:44