Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar 11. september 2026 20:01 Það hefur verið áhugavert að heyra þá samlíkingu undanfarna daga að fyrst við greiðum 24% virðisaukaskatt þegar við förum með börnin okkar í bíó, hljóti það sama að eiga við um heimsókn í baðlón. Undirliggjandi virðist vera sú hugsun að hvort tveggja sé einhvers konar afþreying, jafnvel „lúxus“ og eigi því einfaldlega að bera sama skatt. En með þessum samanburði er alveg horft fram hjá grundvallaratriðinu: bíómiði og aðgangur að baðlóni eru ekki sambærilegar vörur í efnahagslegu tilliti. Íslenskt kvikmyndarhús er fyrst og fremst að selja þjónustu á innlendum markaði. Það er ekki í samkeppni við kvikmyndahús í Noregi eða Skotland um hvort viðskiptavinurinn kaupi bíómiðann sinn á Íslandi eða þar. Ferðaþjónustan býr við allt annan veruleika. Erlendur ferðamaður sem ákveður hvort hann komi til Íslands er að bera saman verð, gæði og upplifun hér við fjölda annarra áfangastaða. Hótelið, veitingastaðurinn, bílaleigubíllinn og afþreyingin (t.d. baðlón) eru öll hluti af verði Íslands sem áfangastaðar. Hækkun skatta á einhverja af þessum þjónustumöguleikum skilar sér því ekki eingöngu sem hækkun á einhverri „lúxusvöru“ innanlands. Hún hefur áhrif á samkeppnisstöðu okkar stærstu útflutningsgreinar. Það er raunar hægt að velja fjölmargar aðrar samlíkingar en bíóferðina. Aðgangseyrir að leiksýningum er til dæmis undanþeginn virðisaukaskatti samkvæmt lögum. Aðgangur að sundlaugum og líkamsræktarstöðum er það einnig. Það þýðir auðvitað ekki að leikhús, sundlaugar og baðlón séu sama vara. Þvert á móti er það einmitt málið – ólík þjónusta býr við ólíkar aðstæður og skattkerfið viðurkennir það nú þegar. Sundlaugar eru mikilvægur hluti af íslensku samfélagi og menningu og það er engin ástæða til að gera lítið úr þeirri sérstöðu. En baðlón eru líka mikið nýtt af Íslendingum um allt land og eiga að mörgu leyti heima í sama heimi heilsu og vellíðunar. Að skilgreina þau einfaldlega sem „lúxus“ leysir okkur ekki undan því að meta efnahagsleg áhrif skattabreytingarinnar. Spurningin er ekki hvort einhverjum finnist baðlón vera „lúxus“. Spurningin er hvaða áhrif skattahækkun hefur á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu, verðmætasköpun og störf. Við getum auðvitað tekið pólitíska ákvörðun um að skattleggja þessa starfsemi meira. En þá eigum við að ræða þá ákvörðun á réttum forsendum og leggja mat á afleiðingarnar. Bíóferð með börnunum segir okkur einfaldlega ekkert um það hvert rétt skatthlutfall alþjóðlegrar samkeppnishæfrar ferðaþjónustu á Íslandi á að vera. Höfundur er verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sundlaugar og baðlón Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar