„Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. september 2026 15:23 Anton beið rólegur í tuttugu mínútur eftir því að hjörðin færi. Anton Freyr Birgisson bjóst við aldrei við því að vera innlyksa inni í miðri hreindýrahjörð í tuttugu mínútur þar sem hann var staddur við hreindýraveiðar sunnan við Bakkafjörð. Myndband Antons frá atvikinu hefur vakið gríðarlega athygli og rakað inn þremur milljónum í áhorfstölur. „
Við vorum á hreindýraveiðum við Bakkafjörð og ég var nú bara burðarmaður fyrir Guðjón Vésteinsson félaga minn, hjörðin hræddist eitthvað og ég vildi ekki styggja hjörðina þannig ég henti mér á bakvið stein. Það var svo hvasst að ég hélt að hjörðin myndi snúa við, síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér,“ segir Anton Freyr í samtali við Vísi. Anton starfar sem leiðsögumaður hjá Saga Travel og Geo Travel, býr á Mývatni og var að smala þegar Vísir náði af honum tali. „Svo lá ég þarna bara á bakvið stein með hreindýrahjörðinni og ákvað að taka upp símann, upprunalega því ég þorði ekki að snúa mér við og þurfti að sjá hvað dýrin væru nálægt mér. Þetta átti aldrei að vera ljósmyndaleiðangur, við vorum vissulega samt að elta hjörðina og höfðum fylgt henni eftir í einhverja sex tíma.“ Anton segist alls ekki hafa átt von á því að myndbandið myndi vekja svona mikla athygli. Hann hafi verið símalaus í göngum undanfarna daga. „Svo kíkti ég á símann minn í gærkvöldi og hann er sprunginn í loftið. Fólki finnst þetta fyndið. Þetta var líka geðveikt, þarna sá maður nokkra flotta tarfa og flottar kýr.“ View this post on Instagram A post shared by Anton Freyr Birgisson (@anton_freyrb)
Dýr Langanesbyggð Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Sjá meira