Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Árni Sæberg skrifar 14. september 2026 10:36 Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins vill að umbætur á umgjörð vinnumarkaðarins verði settar í forgang án tafar. Skammtímalausnir á vinnumarkaði geti skilað tímabundnum árangri en viðvarandi verðbólguvandi verði ekki leystur með þeim einum. Rjúfa þurfi vítahringinn.
Í yfirlýsingu framkvæmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins um stöðuna á vinnumarkaði í september 2026 segir að SA vilji leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólgu með því að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt. Á móti þurfi ríki og sveitarfélög að ganga fram með góðu fordæmi og stilla hækkunum gjaldskráa í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. „Þörf er á samstilltu átaki. Samtök atvinnulífsins vilja án tafar setja í forgang umbætur á umgjörð vinnumarkaðarins í samstarfi við launþegahreyfinguna og stjórnvöld. Sá forsendubrestur sem nú er orðinn þarfnast mun víðtækari aðgerða en skammtíma leiðréttingar á stöðu sem að öðru leyti er ósjálfbær. Markmiðið þarf að vera vinnumarkaðslíkan sem styður við stöðugt verðlag og lægri vexti, sjálfbæran kaupmáttarvöxt og samkeppnishæft atvinnulíf. Varanlegur árangur krefst varanlegra umbóta.“ Í kjölfar kjarasamninga á almennum markaði árið 2024 hafi verið samið um hækkanir til opinberra starfsmanna umfram þær sem stöðugleikasamningurinn geymdi. Það sem af er samningstíma gildandi kjarasamninga hafi laun hækkað meira en um var samið og langt umfram framleiðnivöxt. Slík þróun leiði óhjákvæmilega til verðbólguþrýstings og óstöðugleika. Verði þessi vítahringur ekki rofinn sé óraunhæft að hafa væntingar um hóflegri verðbólguvæntingar. „Skammtímalausnir geta skilað tímabundnum árangri, en viðvarandi verðbólguvandi verður ekki leystur með þeim einum. Það verður að rjúfa vítahringinn.“
Atvinnurekendur Verðlag Vinnumarkaður Kjaramál Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira