Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar 14. september 2026 17:49 Algengasta umræðan kringum gervigreind síðustu misseri hefur líklega verið sú hvað verður um störfin okkar. Síðustu vikur hefur umræðan hins vegar færst yfir í drungalegri pælingar eftir fréttir vestanhafs af alvarlegum öryggisatvikum sem benda til þess að þau sem eru að þróa mállíkönin séu að missa stjórn á tækninni. Í júlí gáfu yfir þúsund starfsmenn leiðandi gervigreindarfyrirtækja út undirskriftarlista til að pressa á stjórnvöld Bandaríkjanna að setja skorður á þróunina áður en hún fer úr böndunum. Starfsmenn fyrirtækjanna eru að segja upp og stíga fram til að vara fólk við að það sé verið að þróa tækni sem gæti útrýmt mannkyninu. Umræðan er því búin að færast yfir í vangaveltur um hvort við séum í hættu vegna gervigreindar. Ef maður talar við fólk sem hefur lifað gegnum vár eins og kalda stríðið þá gera þau lítið úr þessum dómsdagspælingum og fullvissa mann um að það sé alltaf verið að spá heimsendi en svo fari allt vel á endanum. Markmið þessara skrifa er að skyggnast aðeins betur inn í hvað er raunverulega að gerast þarna úti í heimi. AGI sumarið 2026 Almenn gervigreind (e. Artificial General Intelligence eða AGI) er á allra vörum þessa dagana. Þegar OpenAI gaf út nýjasta módelið sitt í byrjun september sagði Greg Brockman, forseti OpenAI: „Velkomin á öld almennrar gervigreindar.“ En hvað er almenn gervigreind? Það er ekki sameiginlegur skilningur á því hvað felst í slíkri greind en í stuttu máli er það kerfi sem getur framkvæmt sömu vitsmunalegu verkefni og fólk almennt getur. Sem sagt, þegar gervigreind verður jafn klár og við mannfólkið. Leiðandi gervigreindarfyrirtæki eins og OpenAI og Anthropic hafa setið undir harðri gagnrýni vegna yfirlýsingaglaðra stjórnenda, því við þurfum að muna að horfa á heildarmyndina: Þessi fyrirtæki eru á leið á markað. Fyrirtækin hafa beinan hagnað af því að telja okkur trú um stórkostlega framtíð, því það ræður verðmiðanum á útboðinu þeirra. Í lok ágúst var greint frá því að Anthropic myndi líklega meta markaðinn á 30 billjónir bandaríkjadala en til samanburðar var landsframleiðsla Bandaríkjanna um 30,8 billjónir dala í fyrra. Gervigreind sem bætir sig sjálf Þótt æsingurinn í sumar hafi mögulega verið markaðstól þá þýðir það ekki að framfarirnar séu eintómur uppspuni. Það sem starfsfólk innan gervigreindarfyrirtækjanna óttast er fyrirbæri sem á ensku er kallað recursive self-improvement (RSI) eða gervigreind sem bætir sig sjálf. Í dag þekkjum við gervigreind sem spjall í tölvu og sum eru farin að nýta þetta spjall í að framkvæma aðgerðir fyrir þeirra hönd gegnum tengingar við kerfi. Gervigreindarmódelin bak við þessi spjöll eru að verða betri og betri og því fylgir að þau verði sjálfstæðari – þau eru farin að verða hraðari og betri í að leysa flókin verkefni fyrir okkur. Með meira sjálfstæði gæti gervigreindin farið að bæta sig sjálf með meiri gögnum, meira reikniafli, með áður ófundnum leiðum, með samvinnu fjölda agenta og svo framvegis. Dario Amodei, forstjóri Anthropic, skrifaði í september að sjálfbætandi gervigreind væri þegar farin að eiga sér stað þvert á greinina og að án aðhalds gæti hún vaxið hraðar en við náum að skilja eða hafa stjórn á. Við erum nú þegar farin að sjá dæmi um þetta en í sumar tilkynnti OpenAI að stærsta módelið þeirra hefði sjálft séð um þjálfun minna módels út frá óljósum fyrirmælum rannsakenda. Sama módel endurskrifaði líka kóðann sinn og lækkaði rekstrarkostnað um 20%. Af hverju er talað um að við séum í hættu? Gervigreindin virðist enn vera fyrirbæri sem er fast í tölvunni. Hvar liggur hættan þá? Algengt dæmi er að líta á mannfólk og maura. Okkur er ekki sérstaklega illa við maura en ef þeir eru fyrir okkur þá hikum við ekki við að losa okkur við þá. Ef við ætlum að leggja niður veg þá látum við ekki maurabú stoppa þá framkvæmd. Sjálfbætandi gervigreind er ekki hættan sjálf heldur má líta á hana sem nokkurs konar hraðal sem margfaldar það sem er sett í hann. Ef við nýtum RSI einungis til að vinna samkeppnina í kapphlaupinu um hver nær að þróa bestu og hæfustu gervigreindina, sama hvað, þá gæti tæknin orðin hættuleg. Hraði kallar oft á fórnir á öðrum stöðum eins og til dæmis öryggi. Hvernig lítur sjálfbætandi gervigreind út án aðkomu manneskju? Áhættur eins og að tæknin geti farið að blekkja mannfólk eða stjórna, útvegað sér sjálf það sem hún þarf eins og meira reikniafl, peninga eða aðgang að kerfum, framkvæmt aðgerðir án leyfis og orðið klókari en mannfólk á sviðum eins og pólitík og hernaði. Ef kerfið tekur fram úr mannfólki með þessum hætti, hvað gerist ef hagsmunir skarast? Það eru þessar vangaveltur sem gera það að verkum að orðræðan er komin í áttina að neikvæðum birtingarmyndum almennrar gervigreindar. Við þurfum að hafa í huga að þessi RSI-hraðall margfaldar líka það sem er gott. Í þeirri framtíðarsýn þar sem gervigreindin er þróuð með ábyrgum og öruggum hætti, þá gætum við fengið að sjá ódýrari og hreinni orku, bóluefni sem tekur aðeins vikur að samþykkja, fjölda sjúkdóma læknaða og heim þar sem vannæringu, lyfjaskorti og heimilisleysi hefur nánast verið útrýmt. Spurningin er ekki hvort hraðallinn verði að veruleika heldur hvað verður sett í hann, hver situr við stýrið og hvert markmiðið er með honum. Það er einnig svarið við spurningunni hvort við séum í hættu eða ekki. Tækni sem snertir okkur öll Það er nokkuð ljóst að tækninni fleygir áfram og með tilkomu almennrar gervigreindar, sama hvort hún er í dag eða ekki, eru nýjar spurningar sem við þurfum að spyrja okkur. Þessari grein var ekki ætlað að reikna út líkurnar á heimsendi en það er mikilvægt að skilja hvaðan þessi orðræða kemur. Þegar 1386 starfsmenn frá fyrirtækjum, sem annars eru í harðri samkeppni, koma sér saman um ákall um að hægja á þróuninni þá er betra að vita um hvað málið snýst. Kalda stríðið fór vel af því að fólk smíðaði mælitæki, samdi um eftirlit og mannfólk tók ákvarðanirnar. Það er nákvæmlega það sem við þurfum að gera núna. Það er eðlilegt að hugurinn reiki að heimsenda, en það hefur hann alltaf gert ef við skoðum söguna. Sama hvort okkur líkar það eða ekki, þá eru alltaf einhverjar líkur á að allt fari úr böndunum af völdum manna og það er engin breyting á því í dag. Það sem skiptir máli í dag er að við höldum okkur upplýstum, leyfum ekki stórum yfirlýsingum að hræða okkur og myndum okkur skoðun á þessari þróun svo við getum tekið þátt í umræðunni sem á við okkur öll, um allan heim. Höfundur er sérfræðingur í gervigreind hjá Almannarómi, miðstöð gervigreindar og máltækni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Skoðun Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun