Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar 15. september 2026 11:03 Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst var spurt: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Meirihluti kjósenda, 52,8%, svaraði nei. Svarið virðist skýrt en samt hefur þegar tekist á um hvað það þýðir. Forsætisráðherra hefur bent á að þjóðin hafi ekki verið spurð hvort draga ætti aðildarumsókn Íslands frá 2009 til baka. Það er rétt, en þar með er málið ekki leyst. Önnur spurning stendur eftir: Hvaða áhrif hefur niðurstaðan á pólitískt og lýðræðislegt gildi sautján ára gamallar umsóknar? Spurningin var afmörkuð Orðalag þjóðaratkvæðagreiðslunnar varð ekki til fyrir tilviljun. Við meðferð málsins á Alþingi var sérstaklega tekist á um hvernig vísa ætti til fyrri aðildarviðræðna og stöðu þeirra. Niðurstaðan varð að spyrja hvort Ísland ætti að „hefja á ný“ aðildarviðræður. Meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar taldi mikilvægt að vísa til fyrri viðræðna en jafnframt að spurningin tæki ekki afstöðu til stöðu þeirra. Þjóðaratkvæðagreiðslan snerist því ekki um formlega stöðu fyrri viðræðna heldur um það hvort hefja ætti þær á ný og niðurstaðan varð nei. Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna var jafnframt lögð sérstök áhersla á að kjósendur fengju skýrar upplýsingar um hvað niðurstaðan hefði í för með sér. Í nefndaráliti utanríkismálanefndar er, með vísan til Feneyjanefndarinnar, bent á að skýrleiki þjóðaratkvæðagreiðslu ráðist ekki aðeins af orðalagi spurningarinnar heldur þurfi stjórnvöld einnig að upplýsa hvað taki við að henni lokinni. Í opinberu kynningarefni kom fram að ef meirihlutinn segði nei yrðu aðildarviðræður við Evrópusambandið ekki hafnar á ný. Jafnframt var tekið fram að slík niðurstaða útilokaði ekki viðræður síðar og að ráðherrar og Alþingi hefðu vald til að taka ákvörðun um það. Nei lokaði þannig ekki framtíðinni, en ef hefja ætti viðræður síðar þyrfti til þess nýja ákvörðun. Umsókn er ekki sjálfvirk Í grein minni á Vísi 6. ágúst 2025, umsókn krefst ákvörðunar ekki ákalls var bent á að formleg staða umsóknarinnar gagnvart Evrópusambandinu væri eitt en pólitískt og lýðræðislegt umboð hér heima til að virkja aðildarferlið annað. Þar var spurt: Hver hefur ákveðið að hefja ferlið aftur? Þá hafði þjóðaratkvæðagreiðslan ekki verið ákveðin. Rúmu ári síðar blasir sama spurning við í nýju ljósi því þjóðin hefur nú sjálf verið spurð hvort hefja eigi viðræðurnar á ný. Svarið var nei. Sautján ár og heil kynslóð Umsókn Íslands var lögð fram árið 2009 og aðildarferlið hefur verið óvirkt frá 2013. Yngstu kjósendurnir 29. ágúst voru fæddir árið 2008 og voru því ekki einu sinni orðnir eins árs þegar umsóknin var lögð fram í júlí 2009. Heil kynslóð kjósenda hafði ekkert um upphaflegu ákvörðunina að segja eða gera. Í fyrsta sinn fékk þessi kynslóð nú sjálf að taka þátt í ákvörðun um hvort aðildarviðræðurnar skyldu hafnar á ný. Skoðanakannanir síðustu daga fyrir kjördag bentu raunar til þess að meirihluti yngsta aldurshópsins hygðist segja nei. Þess vegna skipta sautján ár máli. Á þeim tíma hefur ekki aðeins pólitískt landslag breyst heldur kjósendahópurinn sjálfur. Utanríkismálanefnd taldi raunar að taka þyrfti tillit til þess tíma sem liðinn væri frá því að hlé var gert á viðræðunum og að endurmeta þyrfti fyrri samningsafstöðu og jafnvel samningskafla sem áður hafði verið lokið. Ef tíminn hefur breytt forsendum viðræðnanna með þessum hætti er eðlilegt að spyrja hvort hann hafi ekki einnig áhrif á lýðræðislegar forsendur þeirra. Nýr lýðræðislegur grunnur Hluta svarsins er að finna í sama nefndaráliti. Þar segir að velji þjóðin að hefja aðildarviðræður á ný verði lagður „traustur lýðræðislegur grunnur að aðildarviðræðum Íslands“. Orðalagið skiptir máli. Ef umsóknin frá 2009 fæli enn í sér nægilegt pólitískt umboð til að hefja aðildarferlið á ný, hvers vegna þurfti þá þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2026 til að skapa traustan lýðræðislegan grunn? Og þjóðin valdi að skapa ekki þann grunn. Það þýðir ekki að þjóðin hafi afturkallað umsóknina frá 2009 enda var ekki spurt um það. En þá verður heldur ekki gengið út frá því að niðurstaðan hafi engu breytt um pólitískt og lýðræðislegt gildi umsóknarinnar. Gerum ráð fyrir að hún sé enn formlega til staðar gagnvart Evrópusambandinu. Það má vel vera, en formleg staða hennar segir ekki ein og sér til um það pólitíska og lýðræðislega umboð sem í henni getur falist sautján árum síðar. Hvað er óbreytt? Þann 8. september skrifaði utanríkisráðherra Helen McEntee, sem fer með formennsku Írlands í ráði Evrópusambandsins: “My government respects the outcome of the referendum and will therefore not pursue the resumption of accession negotiations while the status of our accession process remains unaffected.” Fyrri hluti setningarinnar er skýr: ríkisstjórnin telur niðurstöðuna leiða til þess að viðræðurnar verði ekki hafnar á ný. Síðari hlutinn þarfnast hins vegar skýringar. Ef the status of our accession process remains unaffected merkir aðeins að umsóknin frá 2009 hafi ekki verið formlega afturkölluð er það eitt. Ef átt er við að umsóknin haldi óbreyttu pólitísku og lýðræðislegu gildi sem grundvöllur aðildarferlis er það annað. Þetta tvennt má ekki leggja að jöfnu. Þjóðaratkvæðagreiðslan var vísvitandi orðuð þannig að ekki væri tekin afstaða til stöðu fyrri viðræðna. Það er því rétt að nei fól ekki sjálfkrafa í sér afturköllun umsóknarinnar, en af því leiðir ekki að pólitískt og lýðræðislegt gildi hennar hafi staðið óbreytt. Þjóðaratkvæðagreiðslan var einmitt haldin til að fá svar þjóðarinnar við því hvort hefja ætti viðræðurnar á ný og í opinberu kynningarefni var kjósendum sagt að nei þýddi að þær yrðu ekki hafnar á ný, án þess að útiloka nýja ákvörðun síðar. Niðurstaðan varð nei. Eftir stendur því spurning sem formleg staða umsóknarinnar svarar ekki: Hvaðan kemur ákvörðunin um að staða aðildarferlisins sé óbreytt — og hvað nákvæmlega á að vera óbreytt? Nei 29. ágúst lokaði ekki framtíðinni. Breyttar aðstæður geta kallað á nýjar ákvarðanir og nýtt lýðræðislegt umboð. En nei skildi heldur ekki eftir autt umboð fyrir ríkisstjórnina til að ákveða sjálf hvað íslenskt nei skyldi merkja. Höfundur er hagfræðingur með diplóma í opinberri stjórnsýslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun