Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Birgir Olgeirsson skrifar 15. september 2026 12:47 Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir að samfélagsmiðlar eigi ekki sjálfkrafa að vera fyrsta val við auglýsingakaup. Stjórnarráðið segist ætla að styrkja íslenska fjölmiðla með því að beina auglýsingakaupum sínum til þeirra. Anton Brink Stjórnarráðið segist hafa ákveðið að beina auglýsingakaupum sínum til íslenskra fjölmiðla í stað erlendra samfélagsmiðla og leitarvéla. Markmiðið sé að styrkja rekstur íslenskra fjölmiðla og draga úr því að auglýsingafé renni úr landi.
Stjórnarráðið er samheiti yfir ráðuneyti landsins. Í tilkynningu þess í dag er fullyrt að öll ráðuneytin hafi tekið upp breytt verklag. Þar segir jafnframt að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hafi sent stofnunum sínum tilmæli um að fylgja því. „Það skiptir máli að það sé ekki sjálfkrafa fyrsta val að kaupa birtingar á samfélagsmiðlum,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, í tilkynningunni. Vilja verja rekstrargrundvöll fjölmiðla Í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í fjölmiðlamálum frá því í desember er rekstrarvandi íslenskra fjölmiðla sagður áhyggjuefni fyrir samfélagið allt. Þar segir að sjálfstæðir fréttamiðlar veiti stjórnvöldum og atvinnulífi aðhald, miðli áreiðanlegum upplýsingum og varðveiti íslenska tungu. Alþjóðleg samkeppni hafi hins vegar grafið undan rekstrinum og mikill atgervisflótti orðið úr fjölmiðlum. Í áætluninni er lagt upp með að Stjórnarráðið styðji íslenska fjölmiðla með eigin viðskiptum. Það hætti auglýsingakaupum á samfélagsmiðlum og í leitarvélum og leitist jafnframt við að kaupa áskriftir að íslenskum fréttamiðlum. Vísir greindi frá því í nóvember í fyrra að Logi hefði kynnt sambærileg áform fyrir ráðuneyti sitt. Hagstofan segir meirihluta auglýsingafjár renna úr landi Hagstofan segir að 51 prósent auglýsingafjár íslenskra aðila hafi runnið til erlendra miðla árið 2024, eða tæpir fimmtán milljarðar króna. Greiðslur til þeirra hafi aukist um ellefu prósent að raungildi milli ára á meðan auglýsingakaup hjá innlendum miðlum hafi dregist lítillega saman. Stofnunin bendir þó á að aðeins hluti fjárins hafi farið í auglýsingar sem beindust að íslenskum neytendum. Hluti tengist markaðssetningu ferðaþjónustu erlendis og því verði útstreymið ekki allt talið tekjutap íslenskra miðla. Gagnrýndi auglýsingakaup Þjóðleikhússins DV fjallaði í gær um gagnrýni Sigmars Vilhjálmssonar á auglýsingakaup Þjóðleikhússins hjá Google og Meta. Samkvæmt fréttinni spurði Sigmar hvort íslenskir fjölmiðlar ættu ekki að njóta forgangs þegar opinber stofnun auglýsti á íslensku fyrir íslenskan markað. Logi Einarsson segir að stundum náist ekki með góðu móti til ákveðinna hópa með auglýsingum í fjölmiðlum. Ráðuneytið telur æskilegt að skýr rökstuðningur fylgi auglýsingakaupum annars staðar.Vísir Logi hafi tekið undir að ástæða væri til að skoða málið. DV greinir einnig frá mótbárum í umræðunni um að samfélagsmiðlar geti verið hagkvæmari leið til að ná til ákveðinna hópa, einkum yngra fólks. Segja rökstuðning æskilegan Logi segir í tilkynningu dagsins að stundum náist ekki með góðu móti til ákveðins markhóps með auglýsingum í fjölmiðlum. Ráðuneytið tekur fram að erindið til stofnana þess feli í sér tilmæli. Æskilegt sé að skýr rökstuðningur liggi fyrir þegar keyptar séu auglýsingar annars staðar en í fjölmiðlum. Þá segist ráðuneytið einnig hvetja stofnanirnar til að kaupa fjölmiðlaáskriftir fyrir starfsfólk.
Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Auglýsinga- og markaðsmál Stjórnsýsla Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Sjá meira