Handbolti

ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur

Andri Broddason skrifar
ÍBV vann mikilvægan sigur gegn sterku liði Fram.
ÍBV vann mikilvægan sigur gegn sterku liði Fram. Vísir

Einn leikur fór fram í Olís-deild karla í dag þegar Fram tók á móti ÍBV. Fram mistókst að viðhalda fullkominni byrjun á mótinu því ÍBV náði í mikilvægan 33-30 sigur á erfiðum útivelli.

Leikurinn átti að fara fram í gær en vonskuveður á Suðurlandi í gær gerði það erfitt fyrir ÍBV að ferðast og var því leikurinn spilaður í kvöld í staðinn.

Leikurinn var jafn til að byrja með og skiptust liðin á því að skora mörk. Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn byrjaði lið Fram smátt og smátt að bæta forskotið og í hálfleik var Fram með fimm marka forystu, 19-14.

Lið ÍBV kom sterkara inn í hálfleik og var liðið smátt og smátt að minnka forskot Framara og var staðan orðin jöfn þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum. Liðin héldu áfram að skora til skiptis en ÍBV komst í fyrsta skipti í forystuna undir lok leiks.

Fram var í línumannavandræðum þar sem Dagur Fannar Möller fékk rautt spjald þegar 52 mínútur voru búnar af leiknum og Erlendur Guðmundsson fór meiddur af velli í síðustu umferð gegn Val. Það reyndist vera dýrkeypt fyrir Framara að vera línumannalausir því ÍBV var sterkari aðilinn í lokin og náði að lokum að tryggja þriggja marka sigur, 33-30.

Eftir leikinn er Fram í þriðja sæti deildarinnar með fjögur stig sem eru jafnmörg stig og ÍBV er með eftir þennan sigur. Fimm lið í Olís-deildinni eru með fjögur stig og því má búast við jafnri keppni í deildinni það sem eftir er tímabils.

Upplýsingar um markaskorara og tímasetningar fengnar af HBstatz.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×