Bændur æfir vegna pitsaostsins Árni Sæberg skrifar 21. september 2026 12:50 Daði Már ætlar að breyta reglum um ost. Vísir Samtök bænda leggjast eindregið gegn áformum fjármála- og efnahagsráðherra um breytta tollflokkun pitsaosts með viðbættri jurtaolíu. Tollflokkun ostsins hefur verið umdeild frá árinu 2020 og hefur ítrekað komið til kasta dómstóla.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birti þann 4. september síðastliðinn áform um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Meðal boðaðra breytingar er breyting á tollflokkun pitsaosts. Hætti við að hætta við Umræða um tollflokkun pitsaosts hefur verið hávær síðan greint var frá því að Evrópusambandið hefði í fyrsta sinn sett Ísland á lista yfir viðskiptahindranir, sem útflutningsfyrirtæki í Evrópusambandsríkjum segjast beitt í ríkjum utan sambandsins. Ástæðan er ákvörðun Skattsins árið 2020 að breyta tollflokkun á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu. Eitt af fyrstu verkum Daða Más Kristóferssonar í starfi fjármálaráðherra var að boða slíkar breytingar en hann hætti snarlega við þau áform. Rúmu ári eftir að hann hætti við það tilkynnti fjármála- og efnahagsráðuneytisins Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, að breytingar á tollflokkuninni væru eftir allt saman í farvatninu. Málið hófst árið 2020 Forsaga málsins ser í stuttu máli sú að heildsala hér á landi hóf innflutning pitsaosts með íblandaðri jurtaolíu. Samkvæmt ráðleggingum starfsmanna tollstjóra var osturinn flokkaður sem vara sem ber ekki tolla. Árið 2020 var flokkun ostsins hins vegar breytt yfir í flokk vara sem ber háa verndartolla. Belgískur framleiðandi ostsins kvartaði þá til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og í febrúar síðastliðnum var ákveðið að setja Ísland í fyrsta skiptið á lista yfir viðskiptahindranir, sem ríki utan ESB beita útflytjendur innan sambandsins. Samtök bænda ítrekað komið mótstöðu sinni á framfæri Áform um breytta tollflokkun ostsins eru nú í samráðsgátt, án þess að nánar sé tilgreint hver breytingin eigi nákvæmlega að vera. Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn, þar sem beðið var um nánari skýringar á áformunum, sagði einfaldlega að til skoðunar væri að breyta tollflokkun rifins mozzarella osts með viðbættum jurtaolíum, sem notaður er við pitsagerð. Það hefur ekki komið í veg fyrir að fjögur samtök bænda og fyrirtækja í landbúnaði hafa skrifað umsagnir í Samráðsgátt, þar sem andstöðu þeirra er komið á framfæri. Það eru Bændasamtök Íslands, Samtöku ungra bænda, Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Þegar til stóð að breyta tollflokkuninni í fyrra sendu sex hagsmunasamtök landbúnaðar- og matvælaframleiðenda á Íslandi frá sér fréttatilkynningu þar sem komið var á framfæri hörðum mótmælum vegna áforma fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á tollflokkun mjólkurafurða. Þá blandaði þáverandi þingflokksformaður Framsóknar sér í málið. Tollaglufa eða breyting í samræmi við reglur? Í fréttatilkynningu um málið frá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði segir að með breytingunni væru stjórnvöld að ganga gegn margítrekuðum niðurstöðum dómstóla og fyrri yfirlýsingum stjórnvalda um meðferð málsins líkt og komi fram í umsögn samtakanna um málið. SAFL telji breytinguna jafnframt opna nýja tollaglufu sem geti grafið undan innlendri framleiðslu og tollvernd fleiri landbúnaðarvara. Samtökin hvetji fjármála- og efnahagsráðuneytið til að falla frá breytingunni og að fyrri yfirlýsingar stjórnvalda og niðurstöður íslenskra dómstóla verði virtar. „Þetta mál hefur farið ítrekað fyrir íslenska dómstóla og niðurstaðan stendur óhögguð: Ostur er og verður ostur þótt jurtaolíu sé bætt við hann. Nú virðast stjórnvöld ætla að snúa við eigin málflutningi og breyta lögunum til að ná fram annarri niðurstöðu í þágu fárra innflutningsaðila,“ er haft eftir Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra SAFL. Þá segir að málið eigi sér pólitíska forsögu. Í febrúar 2025 hafi SAFL og fimm önnur samtök í landbúnaði mótmælt sambærilegum áformum og bent á að hundruð milljóna króna gætu færst árlega frá íslenskum bændum til erlendra framleiðenda og fárra innflutningsfyrirtækja. Í kjölfarið hafi atvinnuvegaráðherra tekið fram að málið myndi ekki ganga lengra án samráðs við hagaðila um starfsumhverfi landbúnaðarins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hafi síðan tilkynnt Eftirlitsstofnun EFTA í nóvember 2025 að mikilvægt væri að ljúka viðræðum við Bændasamtök Íslands um nýja búvörusamninga áður en frumvarp um breytingar á tollskrá yrði lagt fyrir Alþingi. Áður en þær samningaviðræður hafi farið fram boði fjármála- og efnahagsráðuneytið nú engu að síður breytinguna í frumvarpi um ýmsa skatta og gjöld. „Stjórnvöld verða að standa við eigin yfirlýsingar. Það er ekki trúverðugt að segja ESA og landbúnaðinum að fyrst verði rætt um málið við endurskoðun búvörusamninga en leggja breytinguna síðan fram einhliða áður en þær viðræður hefjast,“ er haft eftir Margréti.
Tollflokkun pitsaosts Landbúnaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Neytendur Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Viðskipti innlent Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Atvinnulíf Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Neytendur Jóhanna tekur við sem forstjóri Viðskipti innlent Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Viðskipti innlent Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Viðskipti innlent Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur Fleiri fréttir Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Sjá meira